Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1946, Síða 127
125
V. Helztu aukaorsakir.
Hefur nú í stuttu máli verið gerð grein fyrir aðalorsökum örorku
þessara 1694 sjúklinga. I köflunum um einstaka sjúkdóma eða sjúkdóma-
samsteypur eftir líffærum er þess víðast hvar getið, hverjar orsakir hafi
einkum talizt meðvirlcar í hverjum flokki. Þegar unnið var úr efniviðn-
um> var reynt að telja saman innan hvers flokks þá sjúkdóma eða
syndromata, sem komu oftast fyrir aukalega, og var þá aðeins tekið með
það, sem taldist verulegu máli skipta. Fékkst þannig vitneskja um tíðni
heplega 60 sjúkdóma eða syndromata þessa fólks.
Fer hér á eftir skrá um algengustu aukaorsakir:
k Hækkaður blóðþrýstingur ........................... 250 sjúklingar
2- Asthenia m. gr...................................... 156 —
3- Sjúkdómar í kviðarholi ........................ 149 —
4. Þrautir og breylingar útlima (liða) ................ 102 —
5. Bronchitis, emphysema & asthma ................... 81 —
6. Ýmsar bæklanir á útlim & hrygg (slys meðtalin) . 75 —
Hjartasjúkdómar ..................................... 61 -—
3. Sjúkdómar í skynfærum (augu, eyru) .................. 59 —
9- Geðveiki ............................................ 51 —
10. Offita.............................................. 45 —
H. Blóðskortur ........................................ 42 —
12. Berklaveiki ........................................ 39 -—
VI, Fyrri störf öryrkja.
Reynt var að gera sér grein fyrir, samkvæmt vottorðunum, hvaða
íúvinnu öryrkjarnir hefðu stundað, áður en þeir urðu öryrkjar, ef
nokkur var. Jafnframt var athugað, hvort þeir hefðu stundað sérstakt
í>am, svo sem í einhverri iðngrein eða öðru, áður eða eftir að örorkan
hófst.
Eins og tafla á bls. 127 ber með sér, skortir nokkuð á, að full vitneskja
se fyrir liendi um fyrri störf öryrkjanna, þar eð hún tilgreinir aðeins um
legund starfa 1649 sjúklinga. í dálkinum: verkamannastörf eru taldar þær
honur, er unnu erfiðisvinnu utan heimilis, en húsmóðurstörf og búsýsla
cr talið undir önnur störf. Er slík skipting vitanlega mjög óglögg, þegar
Um er að ræða konur í sveitum. Að öðru leyti var talið undir önnur
^törf ýmiss konar afgreiðslu- og verzlunarstörf, snúningar og aðstoðar-
störf, sem margir öryrkjanna liöfðu stundað.
Niðurstöðurnar sjást á eftirfarandi línuriti og töflu: