Heimili og skóli - 01.08.1960, Side 8

Heimili og skóli - 01.08.1960, Side 8
52 HEIMILI OG SKÓLI „Vizka hjartans EFTIR ELÍSABET BYRD Fyrir nokkrum árum var ég á ferð með áætlunarbíl til skozka bæjarins Inverness. í bílnum sat ég við hlið há- vaxinnar, grannholda sveitakonu, sem spurði mig, hvernig stæði á því að ég, útlend kona, væri á norðurleið á þess- um harðasta tíma ársins. „Það eru hörð veður hérna uppi á Hálöndun- um,“ sagði hún. Ég sagði henni, að hörð veðrátta ætti vel við mig og að ég væri að viða að mér efni í skáldsögu. Ég sagði henni, að mig langaði til að kynnast bændun- um og hirðunum hérna á skozka há- lendinu, kynnast gömlum þjóðsögum og siðum, sem haldizt hafa nálega óbreyttir í 400 ár. Hún sagði, að mér væri velkomið að gista hjá sér í nótt. „Við eigum að vísu aðeins lítinn kofa,“ sagði hún, „en þar er hlýtt og notalegt, og mér væri það aðeins ánægja að hýsa yður. Það er dálítið einmanalegt fyrir mig, þegar maðurinn minn er á markaðn- um.“ Það var húðarrigning, er við náð- um loksins til litla og fátæklega kofans hennar í þessu eyðilega og hrjóstruga landslagi. Tveir stórir fjárhundar buðu okkur velkomnar og frú Mc Intosh leiddi mig inn í kofann sinn, en þar var allt sópað og prýtt. En allt í einu slokknaði IjÖsið. Hún andvarpaði: „Æ, þarna fór þá rafmagn- ið,“ sagði hún og kveikti á kerti. A meðan hún var að kveikja upp eld á arninum, var barið að dyrum. Hún lauk upp dyrunum og úti fyr- ir stóð drengur. Hún lét hann koma inn og flýtti sér að færa hann úr renn- blautri yfirhöfninni. Þegar hann kom betur í birtuna, sá ég að þetta var á að gizka 12 ára drengur, en hann var svo vanskapaður, að það var hryggi- legt á að líta. Þegar hann hafði jafnað sig litla stund, sagði hann: „Pabbi Ýeyndi að hringja til yðar, en það svaraði eng- inn, svo að ég hljóp hingað til að vita hvernig yður liði.“ „Ég þakka þér fyrir, Pétur minn,“ sagði hún og kynnti okkur, og nú jókst stormurinn um allan helming. Það þaut og hvein í kofaþakinu og glugga- hlerarnir glömruðu og nötruðu, eins og óteljandi draugar hristu þá og berðu. Ég sagði þeim frá því með mik- illi hrifningu, hve þessar hamfarir hefðu djúp áhrif á mig, en sitja svo hins vegar við brennandi arin í nota- legri stofu. „Eruð þér ekki vitund hræddar?“ spurði Pétur. Ég ætlaði að fara að segja nei, en jafnvel þótt húsfreyjan vissi ekki hvað ótti var, varð hún fyrri til og flýtti sér að segja einmitt það, sem hver einasti drengur kaus að heyra undir svona kringumstæðum: „Auðvit- að er hún dálítið hrædd og það er ég einnig, en nú er minni ástæða til þess,

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.