Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI 67 að gefa mér sprautu áður en fjölskylda mín kæmi aftur heim. Á mánudag fór ég á fund hjá A A. Ég skalf allur og nötraði, og mér leið hörmulega illa. Mér var það Ijóst, að ég varð að skýra frá ósigri mínum, en ég mátti ekki til þess hugsa að gera það úr ræðustóli. Ég stóð því upp og sagði aðeins: „Ég drakk um helgina. Ég gat ekki annað. Ég þakka ykkur fyrir að þið hafið ekki lokað dyrum A A fyrir mér. Nú er mér það fyllilega ljóst, að ég þarf á hjálp að halda. Ég veit einnig, að það er hægt að komast upp úr þessu dýki, en því aðeins með því móti að snerta ekki áfengi.“ Næstu mánuði naut ég þess með óblandinni gleði að vera ódrukkinn. Ég sótti reglulega fundi í A A, en ég lék ekki fyllilega heiðarlegt hlutverk þarna á meðal þessara úrvalsmanna í A A. Ég hugsaði sem sé alltaf til þess, að geta einhvern tíma gert það, sem enginn annar ofdrykkjumaður hefur getað: Að drekka i hófi á ný. En næsta kvöld varð ég sem þrumu lostinn, er formaðurinn stóð upp og mælti: „Mig langar tif að tilnefna hinn nýja féfaga okkar Róbert, til að vera formann næsta mánuð.“ Hann átti við mig. Hvernig í ósköpunum átti ég að geta valdið því hlutverki? Næstu viku notaði ég hvert einasta kvöld til að lesa alls konar bækur um þessi mál, og þar á meðal blaðið okkar í A A, til þess að búa mig undir þetta hlutverk. Ég lærði utan bókar „Hina tólf áfanga til bindindis." En þunga- miðjan í þessum grundvallarreglum er sú, að við viðurkennum varnarleysi okkar gagnvart áfenginu, en að vald, senr stendur okkur ofar, getur gefið okkur kraftinn til þess að verða heil- brigðir aftur, ef við leggjum lrönd okkar í guðs hönd. — Fyrsta kvöldið er ég átti að stjórna fundi, stóð ég við dyrnar og lieilsaði öllum með handabandi. Kona mín stóð við hlið rnína glöð og ham- ingjusöm. Ég heilsaði málfærslumann- inum, vélfræðingnum, lækninum, hús- mæðrunum, verzlunarfólkinu og svo nokkrum nýjum félögum, sem voru fölir og óstyrkir. Konurnar hituðu kaffi og smurðu brauð frannni í eld- húsinu. Húsið órnaði af glöðum hlátr- um. Ég hóf fundinn með hinni venjn- legu A A bæn: „Guð gef þú mér þrek til að bera það, sem ég ekki get breytt og hugrekki til að breyta því, sem ég get breytt, og kenn þú mér að gera greinarmun á þessn tvennu.“ A meðan ég las hina stuttu greinargerð um hug- sjónir og grundvallarstefnu A A, sem fundir okkar hefjast ætíð með, héldu þessi orð áfram að hljóma hið innra með mér: „Hugrekki til að breyta því, sem ég get breytt.“ Og eins og í leift- ursýn skynjaði ég sannleikann um mig sjálfan: „Þú ert alltaf huglaus og dreg- ur þig i hlé. — Þú ert ekki hér af fullri alvöru. Þú ert hér ekki með öllu lijarta þinu.“ Og nú varð mér Ijóst, hvernig ég hafði logið að lækninum, sem hafði viljað hjálpa mér, hvernig ég hafði alltaf hikað við að viðurkenna sann- leikann fyrir sjálfum mér, fjölskyldu minni og vinum mínum. Ég liafði alltaf tiltækar einhverjar afsakanir, sem veittu mér aftur greiðan aðgang að drykkjusiðum mínum. Ég hafði aldrei verið nægilega auðmjúkur til að

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.