Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 22

Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 22
66 HEIMILI OG SKÓLI Hún clrakk hann. Þegar börnin konru heim úr skólanum var hún háttuð. „Mamma hefur höfuðverk," sagði hún. „Reynið að finna einhvern mat lianda ykkur sjálf.“ Og enn hugsaði ég: „Hefur þú nokkurn tírna hugrekki til að segja frá fortíð þinni á svipaðan hátt?“ Ég var einu sinni að því kominn að gera jrað, en það var, er ég heimsótti frægan lækni. „Þér verðið að horfast í augu við sannleikann,“ hafði hann sagt. „Þegar þér hafið komið auga á, hvað yður ber að gera og hvers vegna þér hafið konr- izt í þessa aðstöðu, og hver er hin raun- verulega orsök þess — þá fyrst hafið þér von um að geta farið að njóta gleði lífsins. Fæstir menn verða ofdrykkju- rnenn, en hjá nokkrum er þörfin fyrir áfengi orðin að sjúkdómi, og þér eruð einn af þeim.“ Læknirinn gaf mér meðmæli og kom mér í samband við A A samtökin. — Kata lauk máli sínu með orðum, sem brenndu sig inn í hjarta mitt: „Ég get þakkað guði og A A fyrir það, að ég stend hér í kvöld.“ Að lokum var farið með Faðir vorið. „Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.“ — Fundinum var lokið. Ég s;ekk heim með neista af huggun í hjartanu. Ég var alráðinn í að draga mig sjálfur upp úr feninu. Næstu þrjá mánuði fór ég á tvo eða þrjá A A fundi í hverri viku. Þar hélt enginn prédikun yfir mér, en allir virtust ánægðir yfir að sjá mig á fund- unum. Mér var farið að líða betur. í stað þess að leggja leið mína inn í ein- hverja knæpuna, þegar ég kom heim frá skrifstofunni, flýtti ég mér nú alltaf heim. Nú var mig farið að langa til að taka aftur upp tómstundaiðju mína, sem ég hafði stundað í mörg ár. Ég fór að huga að veiðarfærum mín- um, og konan mín var í sjöunda himni. Einn morgun sagði litla dóttir mín við mig: „Pabbi, veiztu að ég þakka guði á hverju kvöldi, en ég ætla líka að þakka þér, að þú ert nú aftur orð- inn frískur.“ En nú hætti ég að koma á fundi í A A. Lar var alltaf eitthvað af fólki, sem ekki gat haft sig upp úr eymd- inni, en ég gat nú séð um mig sjálfur. Þannig liðu nokkrar vikur og fjöl- skylda mín var farin að treysta mér. Dag nokkurn sagði konan mín, að hún ætlaði að skreppa með börnin út í sveit um helgina og heimsækja þar vinafólk sitt. Af gömlum vana fór ég allt í einu að hlakka til að fá að vera einn í húsinu — horfa á sjónvarpið — og drekka. En allt í einu kom mér í hug: „En þú ferð þó ekki að drekka nú. — Ég vil ekki byrja á því aftur. Hvaða þvættingur er þetta?“ Þegar laugardagurinn nálgaðist, varð mér það alltaf ljósara .og ljósara að það var ekki svo auðvelt að rýma burt hugsuninni um að fá sér nú glas. Konan mín og börnin lögðu af stað snemma á laugardagsmorgun. En um kvöldið gekk ég út og keypti tvær flöskur af visky. Aðeins fyrsta staup- ið bragðaðist eins og við mátti búast. Þegar ég hélt áfram að drekka, bölv- aði ég sjálfum mér. Ég hrópaði: „Ó, guð minn, get ég nokkurn tíma hætt aftur að drekka?" Daginn eftir — á sunnudag — varð ég að hringja í lækni og biðja hann

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.