Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 9

Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 9
HEIMILI OG SKÓLI 53 þegar við höfum fengið karlmann í húsið.“ Það varð þögn eitt andartak, svo stóð hann upp og mælti: „Nú ætla ég að vita, hvort allt er í lagi,“ svo hökti hann út úr stofunni, stoltur á svip. Þetta litla atvik hafði svo djúp áhrif á mig, að ég gat varla um annað hugs- að næstu viku. Hvers vegna hafði mér ekki dottið í hug að svara drengnum með svo ríkum og hlýjum skilningi sem frú Mc Intosh? Var ég svo hjarta- köld, að ég gat ekki sett mig inn í kjör annarra? Mér var það að minnsta kosti ljóst, að þetta var ekki í fyrsta skipti, sem ég með vissum hætti hafði svikið menn, sem þörfnuðust hjálpar og uppörfunar og ég tók þann fasta ásetning að reyna að láta það ekki koma fyrir aftur. Hvernig hafði frú Mc Intosh farið að því að breyta vesalings vansköpuðum dreng í djarf- an karlmann, og það aðeins með einni setningu? Hvað var það, sem gaf henni vizku til að breyta svo rétt? Var henni þetta ósjálfrátt eða sjálfrátt? Var það af góðvild, samúð eða háttvísi? — eða var það kannski allt þetta? Mér kom í hug líking, sem sóknarpresturinn okkar notaði einhverju sinni, þegar hann var að tala um kærlekann til ná- ungans. Hann nefndi hann „vizku hjartans“. Þegar ég leit til baka um mína eig- in ævileið, minntist ég þess hversu oft ég hafði notið góðs af þessari „vizku hjartans" frá samferðamönnum mín- um. Þar stóð móðir mín fremst í flokki. Hún hafði við óteljandi tæki- færi hjálpað mér á meðan ég var ung og viðkvæm. Hún hafði alltaf lag á því að gefa mér sjálfstraust og sjálfs- virðingu. Það voru dýrmætar gjafir. Þegar ég var sjö ára gömul, minnist ég þess, að hún átti mjög annríkt við að taka á móti nokkrum vinkonum sín- um í fínt teboð, og ég minnist þess, að mig langaði til að hjálpa henni. Ég tíndi því nokkra túnfífla og bjó til úr þeim laglegan vönd, sem ég afhenti lienni. Flestar mæður myndu hafa af- þakkað slíka gjöf, kannski liefðu þær stungið þessu illgresi í flösku og kom- ið henni svo fyrir í eldhúsglugganum? En móðir mín kom þeim fyrir í falleg- um blómavasa, sem hún setti á slag- hörpuna mitt á milli tveggja fag- urra ljósastika. Og hún afsakaði þenn- an „barnaskap“ ekkert við vinkonur sínar. Enn þann dag í dag er það svo að ég sé aldrei svo blómvönd á gesta- borði, að ég minnist ekki með gleði og stolti fíflanna minna, sem mamma setti í heiðurssæti við hátíðlegt tæki- færi í stað hinna göfugu rósa. „Vizka hjartans“ er fyrst og fremst fólgin í djúpum skilningi á tilfinning- um og viðhorfum annarra manna. Bróðir minn varð einna fyrstur til að kenna mér þetta, og það gerðist kvöld- ið þegar hann varð átján ára. Þá varð hann til þess að breyta ungri og óásjá- legri stúlku, sem alltaf sat hjá í öllum dönsum í elskulega blómarós. Hún var feimin og ólagleg menntaskólatelpa, sem reyndi að láta sem minnst á sér bera úti í einu horni danssalarins, til þess að enginn skyldi taka eftir því að hún sat alltaf eftir. En þegar bróðir minn veitti þessu athygli, komst hann svo við af umkomuleysi hennar og ör- væntingu, að hann gekk rakleitt til hennar og bauð henni upp. En þá gerð-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.