Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 17

Heimili og skóli - 01.08.1960, Blaðsíða 17
HEIMILI OG SKÓLI 61 Frá Ríkisútgáfu námsbóka Viðtal viS forstjórann, Jón Emil GuSjónsson Ríkisútgáfa námsbóka er svo ná- tengd skólunum og starfi þeirra, að kennarar liafa jafnan beðið þess með nokkurri forvitni á hverju hausti, að fá að vita, hvort ekki væri von á ein- hverju nýju — og betra. Ritstjóri Heimilis og skóla leitaði því frétta hjá framkvæmdastjóranum fyrir skömmu og spurði hann hinnar venjulegu spurningar, sem kennarar hafa borið upp á hverju hausti um áraraðir: — Hvað er svo nýtt á döfinni? — Eg myndi segja, að það væri nú ýmislegt og kannski með meira móti, sagði forstjórinn. — Þá langaði mig fyrst til að vita hvers er að vænta af bókum í móð- urmálinu. — Já, það er þá bezt að byrja á byrj- uninni. Eins og þú veizt, hefur annað liefti gömlu útgáfunnar af Gagni og gamni, eftir þá Helga Elíasson og ísak Jónsson, verið í endurskoðun, og verð- ur því breytt í tvö liefti. Fyrra heftið, sem kallast áfram annað hefti, kom út litprentað sl. ár. Að verulegu leyti er |)ar um nýja bók að ræða, þótt bókar- heitið sé að sjálfsögðu óbreytt. Síðasta heftið vona ég, að geti komið út eftir eitt eða tvö ár. Kennslubók i stafsetningu eftir þá Gunnar Guðmundsson og Árna Þórð- arson verður breytt í tvö hefti. Fyrra heftið — fyrir barnaskólana — kom út sl. ár undir heitinu Stafsetning. Barna- skólarilir geta því nú valið um tvær bækur: Þessa nýju bók og Stafsetning og stílagerð. Seinna hefti stafsetning- arbókarinnar fyrir framhaldsskóla — mun að forfallalausu koma út næsta ár. Þá hefur útgáfuréttur verið keyptur að Málfneði Björns Guðfinnssonar og bókin gefin út endurskoðuð af Eiríki Hreini Finnbogasyni. Árið 1957 var gefin út Stafsetning- arorðabók með beygingardœmum eftir Árna Þórðarson og Gunnar Guð- mundsson. Næsta ár var bókin endur- prentuð. Nú hefur verið ákveðið, að allir barnaskólar geti fengið til eignar ókeypis eintök, sem svarar nemenda- tölu í 10 og 11 ára aldursflokkum, enda sendi þeir um það skriflega pönt- un. Unglingaskólar geta fengið á sama hátt ókeypis eintök af bókinni, ef þeir óska. Með þessum hætti gefst skólun- um kostur á að hafa bókina tiltæka fyrir nemendur í hverri kennslustofu og nota hana daglega, eftir því sem til- efni gefst. Víðtæk re'ynsla ætti þannig að fást um notkun hennar. Eftir því sem ég veit bezt, er þetta stœrsta átak- ið, sem útgáfan hefur nokkru sinni gert í einu, varðandi ákveðna kennslu- grein. Mun þetta átak kosta útgáfuna um 200 þúsund krónur. Þá má og geta þess, að gefinn verð- ur út Byrjandinn, en það eru 30 æf-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.