Heimili og skóli - 01.08.1960, Page 16
60
HEIMILI OG SKÓLI
Nokkur l ieilræéi fyrir kennara
1. Vertu alltaf eðlilegur í framkomu
í kennslustofu þinni. Vertu frjáls-
mannlegur í framkomu, alltaf hlýr og
vingjarnlegur, en þó einbeittur.
2. Talaðu ekki hátt, heldur ekki of
lágt, en um fram allt skýrt. Það er
hluti af móðurmálskennslu þinni.
Sparaðu ekki allt of mikið að brosa,
þegar það á við. Ekki sakar að hlæja
uppliátt einstöku sinnum. Það hreins-
ar loftið.
3. Notaðu aldrei háð í þjónustu ag-
ans, sem beinist að einu sérstöku
barni. Börn þola allt annað betur.
Háð eiga þau erfitt með að fyrirgefa
kennaranum.
4. Hafðu gát á orðum þínum í
bekknum, einkum þegar þú ert að
finna að. Eitt ógætilegt orð, eða setn-
ing, sem særir barnið, bakar þér
kannski óvildar þess og foreldranna.
5. Varastu að ávíta eitt barn yfir
allan hópinn. Talaðu heldur einslega
við það. Varastu einnig að láta bekk-
inn dæma um ávirðinoar einstakra
o
barna. Og segið aldrei neitt við börn-
in, allra sízt þau seinfæru, sem vakið
getur vantraust þeirra á sjálfum sér.
6. Gættu þess að tala aldrei í reiði-
tón við börnin, jafnvel þótt þau eigi
aðfinnslur skilið. Hann leiðir til and-
stöðu, en ekki betrunar. Alvarlegar og
einbeittar aðfinnslur eru máttugri til
góðra áhrifa.
7. Komdu alltaf með „dagseðil“ í
skólann á hverjum degi, þar sem dag-
urinn er skipulagður: Hvað á að
syngja í byrjun fyrsta tímans? Hvað á
að setja fyrir í hverri grein? Hvað á að
innheimta hjá börnunum? o. fl. Sé
þetta ekki allt fyrir hendi, er hætt við
að handahóf verði á ýmsu.
8. Hafðu við hendina í stofunni, allt
það, sem þú þarft að nota við kennsl-
una á hverjum degi, e£ hægt er, svo
sem kennsluáhöld, bækur o. fl. Það
truflar kennsluna að þurfa að sækja
þetta þegar kennslustund er liafin.
9. Vertu sjálfur reglusamur í hví-
vetna, í smáu sem stóru. Þá elur þú
upp reglusama nemendur.
10. Settu aldrei meira fyrir til
heimanáms en svo, að börnin geti kom-
izt yfir það með góðu móti og skili því
sæmilega næsta dag. En til þess þarft
þú að setja þig í spor barnsins og
kunna skil á getu þess og þroska á
hvaða aldri sem það er.
11. Gættu þess að gera öllu sem þú
settir fyrir daginn áður, einhver skil.
Börnin vilja það. Annars er hætt við,
að þau missi áhugann fyrir að gera vel
og vanda sig.
12. Sýndu börnunum alltaf virð-
ingu. Vertu kurteis við þau. Þá verða
þau kurteis við þig og bera virðingu
fyrir þér.
13. Vertu vinur nemenda þinna og
reyndu að gera þau að vinum þínum.
Þá mun allt annað verða léttara.
14. Vertu bindindismaður. — Kenn-
ari hefur meiri uppeldisáhrif með því,
sem hann er heldur en hvað hann seg-
ir, þótt það geti verið mikilvægt.
15. Vanda mál þitt. í skólastofunni
má ekki heyrast gróft né óvandað mál.
Sé farið eftir þessum einföldu heil-
ræðum, mun skólastarfið ganga vel.