Heimili og skóli - 01.08.1960, Qupperneq 20

Heimili og skóli - 01.08.1960, Qupperneq 20
64 HEIMILI OG SKÓLI „Nafn mitt er Róbert... Eg er ofdrykkjumahur EFTIR ANONYM „Faðir vor, þú, sem ert á himn- um. . . Orð þessarar gömlu bænar fengu í mínum eyrum nýtt inniliald í lok fyrsta fundarins, sem ég tók þátt í hjá A A samtökunum (Alcoholies Anonymous-Anonnyme Afkohofiser). I gegnum allt vonleysismyrkur undan- farinna tíma sá nú votta fyrir vonar- bjarma. Það var von um heilbrigði, öryggi, lausn frá samvizkubiti og sálar- kvölum. Þetta var þó aðeins ofurlítill bjarmi af von, en nógur til þess, að ég öðlaðist í bili hugrekki til að rétta úr bakinu og taka ákvörðun. í upphafi fundarins hafði formað- urinn kallað í ræðustólinn þreklegan, vel klæddan og djarffegan mann. Mað- urinn hóf mál sitt með því að segja: „Ég.heiti Jón og er ofdrykkjumaður. Og svo skýrði hann frá því, að hann hefði sem sölustjóri fyrir verzlunar- fyrirtæki eitt, tekið eftir því, að eitt glas af áfengi á undan morgunverði, sem hann bauð viðskiptavinum sínum til, virtist gera þá á allan hátt samn- ingaliprari. Sjálfum þótti honum þetta gott til að róa taugarnar, og honum þótti sem hann yrði þá hugmyndarík- ari og frjálslegri í framkomu. Hann sagðist hafa gert það að vana að koma fyrir í ferðatösku sinni einni flösku af áfengi, er hann ferðaðist í verzlunar- erindum til fjarlægra staða. Þá sagðist hann einnig hafa gert sér það að regfu, að geyma sér alltaf dálitla lögg til hressingar á mánudagsmorgna. En eigi leið á löngu þar til hann fór að koma of seint til vinnu sinnar á út myndir frá öðrum byggðalögum, en þetta er dýr útgáfa og byggist á því, að skólarnir kaupi myndirnar. Þá mætti kannski nefna enn eitt ný- mæli: Næstkomandi haust mun útgáf- an hefja tilraun nreð útgáfu á svo- nefndu Arkasafni. Gefnar verða út einstakar 16 síðu arkir í Skírnisbroti. Hver einstök örk mun fjalla um til- tekið efni. Til skýringar nefni ég eftir- farandi: Þættir um Matthías Jochums- son og Hannes Hafstein, tekið saman af Stefáni Jónssyni rithöfundi. Þjóð- sögur um Sæmund fróða. — Smábarna- Iesefni. — Leiðbeiningar í skák. — Frásagnir um ýmsa þætti eðlisfræðinn- ar. — Leikþættir. — Gamansögur og skrítlur — og ýmsar þjóðlegar frásagn- ir. Ætlunin er, að kennarar geti haft þessa þætti til skýringar og uppfylling- ar. Ég vona, að útgáfan geti gefið út að minnsta kosti 6 arkir á næsta ári. Vér þökkum svo að lokum forstjór- anum fyrir allar þessar ánægjulegu upplýsingar.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.