Heimili og skóli - 01.08.1960, Qupperneq 40
84
HEIMILI OG SKÓLI
Frá Barnaskóla Flúsavíkur
Barnaskólanum var slitið í Húsa-
víkurkirkju laugardaginn 30. apríl kl.
14, að viðstöddum fjölda aðstandenda.
Mátti heita, að livert sæti í kirkjunni
væri skipað, bæði uppi og niðri. Skóla-
slitaathöfn þessi hafði sérstöðu að því
leyti, að skólastjórinn, Sigurður Gunn-
arsson, hafði ákveðið, vegna persónu-
legra aðstæðna, að hverfa frá störfum
í Húsavík og flytja til Reykjavíkur.
Að lokinni skólaslitaræðu sinni flutti
hann stutta kveðju- og þakkarræðu til
nemenda, samstarfsmanna og vina, og
bar fram óskir. Að máli hans loknu
kvöddu sér hljóðs séra Friðrik A.
Friðriksson, formaður fræðsluráðs, Jó-
Iiannes Guðmundsson, kennari, og frú
Þorgerður Þórðardóttir. Fóru þau öll
einkar lilýjum viðurkenningarorðum
um störf skólastjóra á undanförnum
tveim áratugum, og árnuðu honum og
fjölskyldu hans allra heilla. Jóhannes
Guðmundsson færði honum ágæta
gjöf, með áletruðum silfurskildi, frá
verður vart á einhverju þessu sviði,
gæti verið ástæða til að segja barninu
að byrja ekki á skólanámi að svo
stöddu, þótt það verði 7 ára á alman-
aksárinu. Og oft er það, að börn eru
einmitt vanþroska á fleira en einu
sviði.
Oft stendur þroski barnsins í nokk-
urn veginn réttu hlutfalli við aldur
þess. En þetta er þó langt frá því að
vera regla, þar sem sannað er að börn
þroskast misjafnlega hratt.
Framhald.
þeim kennurunum. Var það stór og
fögur, innrömmuð mynd frá Húsavík.
Að lokum flutti skólastjóri þakkarorð.
Skólasýning var opnuð klukkan 16
sama dag og var opin í tvo daga. Sýn-
ingin var fjölsótt.
Nokkur atriði úr skólastarfinu. —
Nemendur skólans voru í vetur 214.
Barnaprófi luku 29. Heilsufar var
ágætt.
Ný kennslustofa fyrir tvær deildir
var tekin í notkun snemma í október
í heilsugæzlustöð skólahússins nýja.
Var þá kennslu hætt á háalofti gamla
hússins, en starfsemi þar hefur alltaf
verið erfið og hættuleg.
Skólinn eignaðist nýtt píanó á starfs-
árinu, langþráðan og góðan grip.
Frú Arnfríður Karlsdóttir sá um
hreinlætis- og heilbrigðiseftirlit í skól-
anum í vetur, eins og undanfarin ár.
19 börn nutu ljósbaða.
Foreldradagur. Skólinn tók upp þá
skemmtilegu nýbreytni að efna til svo-
nefnds foreldradags, sem er algengt
kynningarform erlendis milli skóla og
heimila. Hann fer fram með þeim
hætti, að öll kennsla er felld niður, en
í stað þess er foreldrum boðið að koma
í skólann til viðtals við kennara barna
sinna. Foreldradagurinn, sem var 24.
janúar, brást ekki þeim vonum, sem
við hann voru tengdar. Aðsókn for-
eldra mátti teljast ágæt allan daginn,
og voru kennararnir uppteknir allan
auglýstan tíma, og sumir miklu lengur.