Skinfaxi - 01.02.2023, Síða 10
10 S K I N FA X I
Ekki liggja fyrir miklar upplýsingar um umhverfisstefnu íþrótta-
félaga og hvað þau gera til að draga úr umhverfisspori sínu.
Íþróttafélög eru mismunandi stödd, sum standa sig afar vel en
önnur illa. Almennt gera íþróttafélög ekki mikið með stefnu
sína í umhverfismálum og mættu standa sig betur í því að segja fólki
frá því hvað þau gera, að mati Brynjars Freys Eggertssonar,
verkefnastjóra hjá félaginu Einurð.
Brynjar er fulltrúi Einurðar í samevrópska verkefninu Green League,
sem nýtur styrks úr sjóðum Evrópusambandsins, og er þar skoðað
hvernig íþróttafélög á Ítalíu, Slóveníu, Grikklandi, Kýpur, Belgíu og
Íslandi standa sig í umhverfismálum og hvaða skref þau geta stigið
til að gera félögin umhverfisvænni. Hann og tengiliðir verkefnisins í
samstarfslöndunum vinna nú að því að taka saman handbók um það
hvernig halda megi viðburð með sem minnstu umhverfisspori.
Best að fara hægt af stað
Brynjar segir íþróttafélög mislangt komin í þessum málum. „Það er svo
margt vænt og grænt í íþróttageiranum. En því er ekki fylgt nægilega
vel eftir,“ segir hann og bendir á að samstarfshópurinn hafi skoðað
stefnu margra félaga.
Þar á meðal var breska knattspyrnufélagið Forest Green Rovers.
„Það gengur nokkuð lengra en öll önnur félög, nýtir aðeins sólar-
orku og býður félagsfólki ekki upp á bílastæði við leiki liðsins heldur
hleðslustöðvar og hjólagarða. Stuðningsfólk liðsins má heldur ekki
koma á eigin bílum á leiki. Þess í stað hittist það á ákveðnum stað og
tekur saman rafmagnsrútu á íþróttavöllinn. Fólk kemst einfaldlega ekki
öðruvísi á leiki liðsins en með umhverfisvænum fararskjótum til að
koma í veg fyrir losun mengandi efna út í andrúmsloftið,“ segir Brynjar.
Hann kann mýmörg dæmi að fyrirmyndarleiðum íþróttafélaga sem
vilja draga úr kolefnislosun eins og kostur er.
„Eitt knattspyrnufélag á Kýpur borgar fólki fyrir að planta trjám fyrir
hvern leik,“ segir Brynjar og bætir við að hann hafi einmitt tekið eftir
því að UMFÍ hafi á Unglingalandsmótinu um verslunarmannahelgina
2022 plantað trjám á golfvellinum á Selfossi. Það þurfi ekki mikið til,
því margt smátt geri eitt stórt og einhvers staðar þurfi að byrja veg-
ferðina að umhverfisvænna félagi.
Viljum hvorki grænþvott né íþróttaþvott
Í tengslum við verkefnið fór Brynjar á vinnustofu um umhverfismál
íþróttafélaga í Slóveníu. Þar kom fram að umhverfisviðmið væru notuð
sem markaðstæki. Þar á meðal gæfu fyrirtæki og félög sig út fyrir að
vinna eftir umhverfisviðmiðum og draga úr útblæstri þegar slíkt væri
ekki raunin. Þetta er svipað og svokallaður íþróttaþvottur (e. sports-
washing), sem á við um þau ríki sem nýta íþróttir og íþróttaviðburði til
að breiða yfir neikvæða umræðu, eins og Sádi-Arabar hafa til dæmis
gert með kaupum á knattspyrnumönnum.
Vinnubrögðin eru þau sömu hvort heldur er átt við íþróttaþvott og
grænþvott í umhverfismálum, enda er með þeim reynt að blekkja fólk.
Í tengslum við grænþvott Katara eru engar sannanir fyrir umhverfis-
loforðum þeirra.
Hvetur íþróttafélög til að halda
umhverfisvænni viðburði
Íþróttafélög eru mislangt á veg komin á grænni vegferð sinni. Verkefnastjóri hjá fyrirtækinu
Einurð vinnur að gerð handbókar fyrir íþróttafélög sem vilja minnka umhverfisspor sitt.
Félagið er að skipuleggja gönguferðir þar sem einblínt er á umhverfis- og loftslagsmál.