Skinfaxi - 01.02.2023, Side 26
26 S K I N FA X I
Stjörnu-Sævar:
Fékk sendar
morðhótanir
Fyrir áramótin 2018 hvatti Sævar
Helgi Bragason til þess að bann
yrði sett við almennri notkun á
flugeldum út af reyk og rykmeng-
un, sóðaskap og hávaðamengun.
Hvatti hann meðal annars til þess
að umhverfissjónarmið myndu
vega þyngra en skemmtanagild-
ið sem felst í því að sprengja flug-
elda. Í kjölfarið bárust honum hót-
anir frá fólki sem vildi fá að hafa
sína flugelda í friði.
Sævar hvatti ráðstefnugesti til
að huga betur að sjálfbærni, hring-
rásarhagkerfinu og mikilvægi
þess að taka ákvarðanir sem hefðu
góð áhrif á umhverfið.
„Um 25% af öllu lífi á jörðinni
eru í útrýmingarhættu vegna þess
hvernig ein dýrategund er að fara
með jörðina. Þessi dýrategund er
við,“ sagði Sævar og benti á að
þrátt fyrir margar neikvæðar vís-
bendingar væri það fólk enn til
sem afneitaði því að jörðin væri
að hitna.
„Þeir sem gera það eru að
afneita eðlisfræði. Allir hitamælar
jarðar sýna nefnilega þessa
þróun,“ sagði hann og benti á að
mælingar sýndu auknar veður-
öfgar og öflugri hitabylgjur auk
súrara hafs og fleiri þátta. Þessi
þróun hefði áhrif á fólk, ekki síst
Draumur Þorgerðar Katrínar
rættist á Reykjum:
Tók upp Evru
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, hefur alltaf
talað fyrir því að taka upp evru í
stað krónu sem gjaldmiðils hér á
landi. Draumur Þorgerðar Katrínar
rættist á ungmennaráðstefnunni,
ef svo má segja, því einn starfs-
manna á vegum UMFÍ var með
tíkina Evru með sér. Þorgerður
fékk að taka tíkina upp og knúsa.
Það vill svo til að móðir Evru
var tíkin Króna, sem féll frá fyrir
nokkrum árum.
börn, og rýrði lífsgæði þess.
„Við þurfum ekki að vera með
samviskubit alla daga. En við þurf-
um að draga úr útblæstri gróður-
Hvatti hann meðal annars til þess
að umhverfissjónarmið myndu
vega þyngra en skemmtanagildið
sem felst í því að sprengja flugelda
húsalofttegunda, vera vakandi
fyrir því og grípa í taumana. Það
hefur verið gert áður með góðum
árangri. Það mikilvægasta sem
þú gerir í umhverfismálum er að
fræðast, fræða aðra, vera fyrir-
mynd, láta í þér heyra og kjósa,“
sagði hann.