Skinfaxi - 01.02.2023, Side 30
30 S K I N FA X I
„Þetta var geggjað havarí og svakalegt stuð. Aðsóknin var rosaleg en
öll skemmtu sér vel og fóru glöð út með flottar kökur. Ég er rosalega
stoltur af því hvað þetta tókst vel,“ segir bakarameistarinn Róbert
Óttarsson, sem var sérgreinarstjóri í kökuskreytingum á Unglingalands-
móti UMFÍ á Sauðárkróki.
Þátttaka í kökuskreytingum sprakk út á Unglingalandsmótinu og fór
langt fram úr væntingum. Rétt tæplega 400 ungmenni á aldrinum 11
til 18 ára voru skráð til leiks. Á mótinu voru um þúsund þátttakendur
og er talið að á bilinu 4.000 til 5.000 manns hafi verið á Sauðárkróki
í tengslum við mótið. Foreldrar þátttakenda, forráðafólk og systkini
höfðu nóg að gera í alls konar afþreyingu og viðburðum og gátu prófað
ýmsar forvitnilegar greinar.
Slíkur var fjöldinn að breyta þurfti áður auglýstri dagskrá og skipta
keppendum í þrjá hópa til að koma öllum fyrir í íþróttahúsinu. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir að keppnin tæki tvær klukkustundir. Raunin varð
hins vegar sú að keppnin stóð nokkuð stanslaust yfir í fimm klukku-
stundir.
„Við þurftum að fjölga dómurum því nánast ekkert hlé var á milli
holla. Þegar eitt lauk keppni beið annar hópur ungmenna við útidyrnar,“
segir Róbert og bendir á að ýmislegt hafi farið úr skorðum þegar
yngsti aldursflokkurinn hafi keppt. Gera þurfti svo marga kökubotna
að allt hafi verið úti um allt. Eftir afhendingu verðlauna týndi síðan
Róbert úrslitablaðinu og mundi hann ekki nöfnin á neinum.
„Liðin hétu síðan skemmtilegum nöfnum eins og Stuðgellurnar,
Flugvélagellurnar og öðrum skrautlegum nöfnum. En við lærðum mikið
af fyrsta hollinu og það var magnað hvað allt rúllaði vel áfram,“ segir
Róbert, sem getur ekki með nokkru móti munað hvaða lið voru í fyrstu
þremur sætunum og ekki heldur nöfnin í einstaklingskeppnunum.
Svakalegt stuð á
Unglingalandsmóti UMFÍ
Líf og fjör var á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fór á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Boðið var upp á fjölda íþróttagreina og voru þær fjölmennustu með breyttu sniði að þessu sinni.
Aðsókn í sumar greinar var langt umfram væntingar.
Breytt fyrirkomulag sló í gegn
Kökuskreytingar er tiltölulega nýleg grein á Unglingalandsmóti UMFÍ
og eru vinsældir hennar gríðarlega miklar. Ljóst er af vinsældunum og
góðri skráningu í aðrar óhefðbundnar greinar að þátttakendur leita
eftir nýjum útfærslum á klassískum íþróttum og nýjum greinum til að
prófa. Á meðal vinsælla greina voru grasblak, grashandbolti, blindra-
bolti og margar fleiri greinar.
Breytt fyrirkomulag fólst meðal annars í því að knattspyrna, körfu-
bolti, grasblak og grashandbolti voru öll spiluð á einum degi. Þá stóð
keppni í frjálsum íþróttum yfir í tvo daga í stað þriggja.
Þetta breytta fyrirkomulag létti nokkuð á foreldrum og þátttakend-
um á mótinu sem þurftu ekki að hlaupa á milli valla og greina til að
missa ekki af neinu.