Skinfaxi - 01.02.2023, Page 36
36 S K I N FA X I
Metaðsókn í
Drulluhlaupi
Krónunnar
Heljarinnar stuð var í Mosfellsbæ þegar Drulluhlaup Krónunnar
var haldið í annað sinn. Hlaupið sló í gegn í fyrra þegar 400
manns tóku þátt og var stefnt á að ná tvöfalt fleiri í hlaupið á
þessu ári. Nú var meiri drulla og enn meira fjör.
„Þetta var geggjað gaman!“ hrópaði Íris María
upp yfir sig þegar hún kom úr Drulluhlaupi
Krónunnar og UMFÍ sem fram fór í brakandi
blíðu við íþróttamiðstöðina við Varmá í Mos-
fellsbæ hinn 12. ágúst. Hún og faðir hennar
voru á meðal 800 þátttakenda í hlaupinu, sem
stóð frá klukkan 10 til 14.
Þetta er í annað skipti sem Drulluhlaup Krón-
unnar er haldið, en að því stóðu Krónan, UMFÍ
og Umf. Afturelding, sem sá um framkvæmd
mótsins. Þegar hlaupið fór fram í fyrra tóku
um 400 manns þátt. Stefnt var að því að tvö-
falda fjölda þátttakenda og tókst það. Áhrifa-
valdurinn og skemmtikrafturinn Eva Ruza og
útvarpsmaðurinn Gústi B. héldu uppi stuðinu.
Drulluskemmtilegt hlaup
Leiðin í Drulluhlaupinu er 3,5 km löng með
meira en 20 hindrunum sem þátttakendur
hjálpuðust að við að komast yfir. Mikill hluti
þátttakenda var fjölskyldur sem skemmtu sér
saman við að spretta úr spori og voru börnin
á ýmsum aldri. Nokkrar þrautirnar voru nýjar
og var búið að breyta öðrum eldri brautum.
Sérstakt drullusvæði var búið til fyrir yngstu
börnin og nutu þess enn fleiri við að maka sig
út í drullu. Hægt var að skola af sér á sérstöku
svæði og fengu allir þátttakendur auk þess
ókeypis í sund í Varmárlaug svo að enginn
færi heim skítugur í fjölskyldubílnum.
Fólk var oftast nær klætt íþróttafötum í
hlaupinu. Björn Ómarsson var hins vegar í
sínu fínasta sparitaui og bindi sömuleiðis.
Hann var með þeim fyrstu sem sprettu úr
spori í þessu káta hlaupi.