Skinfaxi - 01.02.2023, Qupperneq 38
38 S K I N FA X I
E
inar ólst upp sem glímumaður hjá
Ungmennafélaginu Mývetningi, sem
er aðildarfélag Héraðssambands
Þingeyinga. Glíma var þar lengi sterk
en er ekki lengur. En Einar, sem er með þekkt-
ari glímumönnum landsins, Evrópumeistari
og með alla þá titla sem hægt er að landa í
þessari þjóðaríþrótt, var síðasti Þingeyingur-
inn til að æfa glímu hjá Mývetningi. Hann
hætti í lok sumars og byrjaði að æfa undir
merkjum KR í september.
Einar segir ýmsar ástæður fyrir fækkun iðk-
enda í glímu. Sumir ungir iðkendur finni sig
betur í hópíþróttum auk þess sem færri félög
Glímukóngur slær í
gegn í Bandaríkjunum
Íslenska glíman er í útrýmingarhættu og hefur iðkendum þessarar
þjóðaríþróttar Íslendinga fækkað verulega síðustu misserin.
„Við erum á virkilega slæmum stað. Ef ég ætti að smala saman öllu
glímufólk frá barnsaldri til ellilífeyrisþega á mót yrðu þar á bilinu
130–140 keppendur,“ segir glímukóngurinn Einar Eyþórsson.
Glímukóngurinn Einar Eyþórsson er einkar víkingalegur að sjá, rauðhærður, þrekinn og ósigrandi.
• Talið er að landnámsmenn hafi flutt
tvenn fangbrögð með sér hingað
frá Norðurlöndunum og Bretlandi.
Brögðin blönduðust saman í fjöl-
breyttari fangbrögð með fjölda
bragða og taka í fótum sem í dag
eru orðin að glímu.
• Víða er rætt um glímu í íslensku
fornsögunum.
• Jóhannes á Borg, einn af stofnend-
um UMFÍ, er einn af þekktari glímu-
mönnum Íslands. Hann fór fyrir hópi
glímumanna á Ólympíuleikunum í
Lundúnum árið 1908 með hvítblá-
ann í fararbroddi.
bjóði upp á glímu en áður. Nú eru félögin nær
eingöngu innan Héraðssambandsins Skarp-
héðins (HSK), Ungmenna- og íþróttasambands
Austurlands (UÍA), í Njarðvík, hjá Ungmenna-
sambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirð-
inga (UDN) og auðvitað KR, sem er aðildar-
félag Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR).
Snúa vörn í sókn
Einar og fleira glímufólk hafa í nafni Glímu-
sambands Íslands snúið vörn í sókn, sem felst
í því að vinna með aðdáendum glímu í öðrum
löndum að uppgangi íþróttarinnar erlendis og
blása með því móti lífi í glæður hennar hér.