Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 5

Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 5
LÆKN AN EMINN 5 kvilla. Hækkar serum-kopar og nær hækkunin hámarki sínu milli 5. og 11. dags eftir hjarta-áfallið. Serum-zink aftur á móti lækkar verulega við þennan sjúkdóm. Einn- ig hækka verulega serum lactic de- hydrogenase (S-LD) og Serum malic dehydragenase (S-MD), sem ásamt serum-zink lækkuninni skeð- ur á fyrstu 24 klst. eftir hjarta- infarkt, og nær mestu hækkun á 3. degi sjúkdómsins. Öll þessi ,,enzym“ og „metallo- enzym“ (kopar og zink) eru talin auðveld til rannsókna með „spect- rofotografi". Segja Bostoh-höf- undarnir Adelstein og félagar4) (Wacker og félagar)5), að þeir hafi búið til ódýrt og handhægt tæki til þessara og annarra „enzym“- rannsókna. í síðustu grein, er ég sá um þessi efni (Manso og félagar)0) segir, að salicylsýra hækki SGO-T og SGP- T í meira en helming tilfella meðal hraustra og gigtar- („rheumat- ic“) barna. Varð ég þess var, að rannsóknir þessar voru framkvæmdar við þær deildir, sem ég dvaldi á í Banda- ríkjunum, og voru þeir, sem ég talaði við um þessi mál, sammála um, að „enzym“-rannsóknir þessar væru til mikils örvggis í greiningu fyrrnefndra sjúkdóma. Ballistocardiografi ritar upp hreyfingar líkamans við það, að hjartað dregur sig sam- an og spýtir blóðinu út í æðakerf- ið. Aðallega er um að ræða hreyf- ingar í áttina til höfuðs og fóta, en einnig til hliðanna. Eru til ýms- ar gerðir ,,ballistocardiografa“, sem rita hreyfingar líkamans bæði í lengdar- og þveröxli. Liggur sjúk- lingurinn á sérstöku borði, sem umflotið er kvikasilfri (John Hop- kins University) til að ná sem greinilegast hreyfingunum, og eins er allt gert til, að sjúklingurinn slappi sem bezt af. Mér virðist þessi rannsóknaraðferð ennþá á tilraunastigi, og hún hefur ekki náð inngöngu í „kliniska medicin". Er hún ætluð til að mæla afköst („output") hjartans. Sama er að segja um Vector cardiografi, sem ekki er komin af tilraunastiginu, og sem ritar upp þriggja vídda „spatial vector dia- gram“ og á því má lesa breyting- ar eða skemmdir á hjartavöðvan- um, og staðsetja þær með ná- kvæmni. Aftur á móti er phonocardio- grafi mjög útbreidd, bæði mikils- verð og nákvæm til aðgreiningar á hinum ýmsu hjartaóhljóðum. Við þessa rannsóknaraðferð ritast upp samtímis hjartahljóðin og línurit af hjarta (ekg.) og er því auð- velt að sjá, hvar óhljóð er í „cyk- lus“, ef það er fyrir hendi. „Isotopa“-rannsóknir. Það sem vakti hvað mesta eftir- tekt mína, voru ,,isotopa“-rann- sóknir og „isotopa“-meðferð á sjúkdómum í glandula thyroidea og ,,isotopa“-meðferð á vissum tegundum hjartasjúkdóma. Er það kunnugt, að mæling efnaskípta með radioaktivu joði (J131) er miklu nákvæmari og öruggara og fæst rétt útkoma í 90% af tilfell- um gegn hér um bil 50% með eldri aðferðinni, þar sem súrefnis- notkunin liggur til grundvallar, og tekið er tillit til hæðar og þyngd- ar sjúklingsins ásamt hitastigi og loftþrýsting við útreikninginn. Radioaktivt joð er notað til með- ferðar á hyperthyroidismus bæði præ- og postoperativt, þá einnig við ekki of stór struma. Stórt struma er ráðlegt að nema burtu með skurði, þar sem það sýgur

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.