Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 35

Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 35
LÆKNANEMINN 35 LÆKNA NEMINN BLAÐ FÉLAGS LÆKNANEMA Ritnefnd: Hrafn Tulinius, ritstj. Þórarinn Ólafsson. Þórey J. Sigurjónsdóttir. Auglýsingar: Edda Björnsdóttir. Kristján Baldvinsson. Oddur Bjarnason. Prentað í Steindórsprenti h.f. Um Lœknanemanno Ritnefndin vonar, að kollegar vorir séu ánægðir með nýju fötin LÆKNANEMANS. Guðmundur Bjarnason, stud. med., hefur gert káputeikninguna og við þökkum honum. Ákveðin hefur verið breyting á dreifingarfyrirkomulagi blaðsins. Undanfarin ár hefur það verið venja, að stúdentar keyptu LÆKNANEMANN í lausasölu, en öllum kennurum deildarinnar og nokkrum öðrum hefur blaðið ver- ið sent ókeypis. Nú er ætlunin að fækka þessum gjafablöðum að mun, en læknum, lyfjafræðingum og tannlæknum landsins hefur ver- ið skrifað og þeim boðin áskrift að ritinu. Til þess að áskriftar- söfnunin geti borið tilætlaðan ár- angur, verða stúdentar að vera duglegir. Við verðum, hvert um sig, að gera okkar með því að tala við þá, sem við erum kunnug, en allir meðlimir félagsstjórnar og ritstjórnar taka síðan við áskrift- unum. Ennfremur er í athugun að sækja til Háskólaráðs um styrk til útgáfunnar. Ef þetta hvort tveggja gengur vel, verður fljótlega náð því takmarki, að áskrift að LÆKNANEMANUM verði inni- falin í árgjaldi Félags læknanema. Um leið og við þökkum öllum þeim, sem lagt hafa efni til þessa tölublaðs, þökkum við öllum lækna- nemum og öðrum þeim, sem rit- nefndin hefur átt viðskipti við, fyr- ir mjög ánægjulegt samstarf. Okk- ur er vel ljóst, að margt hefur okkur farið verr úr hendi en skyldi, og biðjum við hér með velvirðing- ar á því. Nú tekur ný útgáfustjórn við með næsta tölublaði, og óskum við ykkur til hamingju með það, og henni biðjum við allra heilla í starfinu. Þökk fyrir samstarfið. Þýðingarmesti hlutinn í stethoscopinu. Bretarnir segja, að þýðingar- mesti hlutinn af stethoscopinu sé sá, sem er milli eymastykkj- anna, þegar það er í notkun. Ef hún nú deyr, þrátt fyrir allt, getur fjölskyldan þó huggað sig við, að hún deyr eftir kúnstar- innar reglum, og það er betra að deyja eftir reglunum, en að lifa á móti þeim. Batni henni, er það okkur að þakka; ef ekki, þá er það lögmál náttúrunnar — og þar með basta. Moliére (L’amour médicin).

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.