Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 33

Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 33
LÆKN ANEMINN 33 BRÉFADÁLKUR. LÆKNANEMANUM hafa borizt bréf frá nokkrum lækna- nemum. Hefur orðið úr að opna með þeim nýjan þátt í blaðinu, í þeirri trú, að fleiri muni í framtíðinni finna hvöt hjá sér til að koma þannig á framfæri því, er þeim kynni að liggja á hjarta. Nulla est Rosa .... Allir læknanemar og prófessorar í III. hluta, vita, að við. eigum við illa loft- ræsta og þrönga kennslustofu að búa, þar sem aðalkennslan í þriðja hluta fer fram. Nemendur sitja þar hver við annan, lær við lær og hné við þjó. Stólarnir eru fornfálegar eftirlíkingar af körfu- og kontorstólum, sem lætur jafn hátt í og Rock’n Roll hljómsveit, ef einhver reynir að liðka um sig, ég tala nú ekki um, þegar allir standa upp, eins og strmdum kemur fyrir í klínik, má þá varla heyra mannsins mál, meðan menn eru að rejma að lempa sig á bersvæði, sem tekur alllangan tíma vegna þrengsla. Þeir, sem vitið og valdið hafa, segja, að þetta standi til bóta, þegar við fáum nýju kennslu- stofuna eða stofurnar, en hvenær verður það, eftir 5—10 ár? Er það meiningin að láta okkur sitja á þessum hrossa- brestum þangað til. Prófessorarnir í síðasta hluta hafa þann mjög vítaverða sið að kenna allar frímínúturnar og sleppa okkur ekki út fyrr en næsti lærifaðir er búinn að krimta góða stund fyrir utan, og jafnvel farinn að taka í snerilinn, til að vekja athygli á sér. Prófessorarnir virðast ekki gera sér grein fyrir, hvernig að okkur er búið heilsufræðilega séð. Loftræstingin er sama og engin nema ef nefnt væri relluverk nokkuð, er sett hefur verið í efsta glugga, en ef það er sett í gang, heýra þeir er aftast sitja mjög takmark- að, þar af leiðandi er hún sjaldan höfð i gangi. Af þessu leiðir, að heilsellur manna eru þjáðar af „anoxi", hita og skítalykt og líkaminn lurkum laminn af setu á áðurnefndum stólum, þegar liðið er að tímalokum. Nei, það er ekki verið að sleppa okkur þá! heldur er kennt 10—15 mín. fram yfir tímann, þannig að okkar akademiska kortér „redúserast" niður í 5—0 mínútur. Það er mikill misskilningur, ef haldið er, að sú kennsla, er við fáum í friminútum okkar, vegi á móti þeirri nauðsyn að rétta úr sér og anda að sér skárra lofti. Er prófessorunum vinsamlegast bent á, að andspænis þeim blasir við klukka, sem oftast gengur rétt og mætti þar af leiðandi fara eftir. Ég er þeirrar skoðunar, að flótti sá úr aukafögunum, er nú tiðkast, komi mikið til af þessu, því að menn geta ekki hugsað sér að sitja margar klukku- stundir sleitulaust við slíkar aðstæður. VULPES. Um brautskráningu. Á síðastl. vetri var i LÆKNANEM- ANUM minnzt á þann hátt, sem hafður er á um brautskráningu stúdenta frá Háskóla Islands og bent á ráð til að gera þá athöfn hátíðlega. Prófessarar læknadeildar tóku þetta að nokkru til greina og hafa síðan drukkið kandídötum skilnaðarskál, um leiö og afhending skilríkja fer fram. En hvers vegna er háskólanum ekki sagt hátiðlega upp eins og flestum öðr- um skólum? Á haustin er haldin svo nefnd háskólahátíð, þar sem stúdentum eru afhent borgarabréf sín. Margir þeirra stunda aldrei nám við háskólann og aðrir ljúka ekki prófi. Er nú ekki eðlilegra, að háskólinn haldi hátið þeim nemendum sínum, er stundað hafa þar nám, margir í 7—8 ár, og lokið síríum prófum? En 50—60 manns ljúka nú embættisprófi árlega. I menntaskóla var skólauppsögn á- nægjulegur atburður, sérstaklega, þeg- ar við urðum stúdentar. Við nám eins og læknisfræði umgangast nem- endur hvern annan og kennara sína mun nánar en í menntaskóla, og em- bættispróf er mun stærri áfangi en stúdentspróf, sem reynt er að gera minnisvert á ýmsan máta, og ætti há- skólinn ekki að standa þar mennta- skólunum að baki. Hátiðarsamkoma á sal væri þá sjálf- sögð. Væri hún fyrir prófessora, kenn-

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.