Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 31

Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 31
LÆKN ANEMINN 31 sem þeir gætu æft sig á, á meðan þeir væru að komast yfir byrjunar- örðugleikana. Þá lagði próf. Snorri áherzlu á, að hann teldi stúdenta hvergi nærri spyrja nóg, er þeir dveldu á deildinni. I „kúrsusum“ væri hlutverk stúdentsins að hafa augu og eyru opin, beita skynsem- inni og spyrja, þegar skilninginn þryti. Stúdentar ættu ófeimnir að spyrja, en ekki láta hið dula eðli Islendingsins vera sér þar fjötur um fót. Starfsmönnum deildarinn- ar væri einmitt sönn ánægja, að leysa eftir getu úr spurningum fróðleiksfúss, áhugasams stúdents. Eftir að hafa rætt tillögurnar lýsti prófessorinn þeirri skoðun sinni, að þær væru ekki nógu vel unnar og vanhugsaðar í ýmsu, þyrftu því að koma fram nýjar og þrauthugsaðar, til þess að fram. kvæmdir yrðu mögulegar og stúd- entum til góðs. Að endingu bað prófessorinn stúdenta að minnast þess, að aðal- námið hæfist fyrst raunverulega með sjálfu læknisstarfinu. Er próf. Snorri Hallgrímsson hafði lokið máli sínu tók próf. Sigurður Samúelsson til máls: Hóf hann mál sitt með því að þakka félaginu fyrir að hafa boðað til þessa fundar. Kvaðst hann hafa margar hugmyndir („ideur") í kollinum um það, hversu bæta mætti menntun læknastúdenta, — en sagðist þó aðeins lítillega mundu koma inn á þær að sinni. Próf. Snorri hefði þegar rætt fundarefnið allýtarlega, — sjálfur myndi hann aðeins ræða þann hluta tillagnanna, er snerti lyf- læknisfræðina. Hann kvaðst þeirrar skoðunar, að fremur bæri að lengja „kurs- usa“ á lyflæknisdeild en stytta. Heppilegast yrði, að sem mestur hluti þeirra yrði í ni hluta, þar sem síðasta hluta stúdentar hefðu bezt skilyrðin til að hafa gagn af dvöl á lyf jadeild. Hins vegar myndi ekki veita af 1 mánuði í miðhluta, einvörðungu á rannsóknarstofu, a.m.k. er hið væntanlega „central- laboratorium" væri tekið til starfa. Prófessorinn taldi nauðsynlegt að endurvekja kursus á Vífilstöð- um, en þar væri tvímælalaust bezti og eini staðurinn til að læra lungnahlustun. Hann tók undir með prófessor Snorra, að aukið húsrými (skoð- unarherbergin) skapaði skilyrði til þess að auka not stúdentsins af sjúkraskrártökum, þ. e. gerði læknum fært bæði að gagnrýna sjúkraskýrsluna svo og að fara yfir skoðun á sj. með stúdentun- um. I sambandi við, að farið var fram á kennslu í hjálp í viðlögum í I hluta, mætti taka til athugunar, hvort ekki myndi rétt að hafa fyrirlestra með stúdentum í þeim hluta m.a. um framkomu læknis við sjúklinga o. s. frv. Um hina „teoretisku kennslu“, kvaðst hann þeirrar skoðunar, að heppilegast væri að gera kennsl- una fjölbreyttari með bví að fá ýmsa sérfræðinga til að flytja fyr- irlestra úr sínu fagi. Gat þess, að hann gerði sér vonir um, að t. d. beir dr. Sigurður Sigurðsson, heilsugæzlustjóri, og Kjartan R. Guðmundsson flyttu í framtíðinni fyrirlestra úr sínum sérfögum, berklum og neurologi. Að lokum sagði prófessorinn, að hann teldi það mjög til eftirbreytni, að slíkir fundir væru haldnir, en þó ekki nema einu sinni á vetri, nema sérstakt tilefni gæfist. Af stúdentum tóku til má-ls Leif- ur Björnsson og Sig. Þ. Guðmunds- son. Leifur ítrekaði, að tillögurnar væru aðeins miðaðar við það, sem hægt og auðvelt væri að gera strax,

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.