Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 16

Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 16
16 LÆKNANEMINN COOMBS’ PRÓF. (Anti-hiunanglobulin próf). Coombs’ próf er immunohæma- tologisk rannsóknaraðferð, sem notuð er til að leita að vissum teg- undum mótefna (antibodies). Það hefur diagnostiskt gildi við ýmar tegundir hæmalytiskrar anæmiu, fyrst og fremst Rh-sensitisatio (erythroblastosis foetalis, trans- fusionsreaktionir) og ýmsa aðra hæmolytiska sjúkdóma, þar sem um einhvers konar mótefnamynd- un gegn rauðum blóðkornum virð- ist vera að ræða, t. d. anæmia hæ- molytica aquisita idiopathica. Prófið byggist á því, að viss mót- efni geta bundizt yfirborði erythro- cyta, án þess að valda agglutina- tio. Með því að láta serum úr kan- ínu, sem immuniseruð hefur verið fyrir mannaglobulini, verka á þannig ,,húðuð“ blóðkorn, má fá agglutinatio, því að mótefnin, sem loða við blóðkornin, tilheyra glo- bulinflokki serumproteina, eins og mótefni yfirleitt. 6) Miltisstækkun samfara ruptura lienis krefst náttúrlega að brugðið sé skiótt við og milt- að tekið. NB. Sérstaklega skal minnt á ,,subcapsuler“ blæð- ingu eftir trauma, það á ekki að bíða eftir að miltað rifni. 7) Við Banti’s syndrom getur kom- ið til mála að taka milta eða gera anastomosu á milli v. porta og v. cava caudalis eða á milli v. lienis og v. renalis. (Porta- caval shunt). Reykjavík, 19. febr. 1957. Bjarki Magnússon stud. med. Coombs’ serum: Antihumanglobulin serum fæst með því að sprauta serum úr mönnum í kanínur, sem svara með því að mynda mótefni gegn því. Mótefnin í kanínublóðvatninu eru síðan titreruð með praecipitin- prófi, sem verður að vera jákvætt í þynningunni 1:8000, þ. e. gefa útfellingu með mannaserum, sem þynnt hefur verið að því marki. Síðan þarf að losna við öll mót- efni, sem agglutinerað gætu nor- mal rauð blóðkorn. Er það gert með því að absorbera kanínublóð- vatnið með blöndu af A, B og Q blóðkornum úr mönnum, þar til engin mótefni gegn slíkum blóð- kornum eru eftir. Síðan er blóð- vatnið titrerað með ,,húðuðum“ blóðkornum og athugað, hve mikið má þynna það, til þess að það gefi greinilega svörun. Bezt er að nota Coombs’ serum óþynnt, en sjálfsagt er freistandi fyrir fram- leiðendur að þynna það eitthvað. Gæðin fara minnkandi með aldr- inum, og ber að gæta þess, að of gamalt serum getur gefið ranga neikvæða svörun. Ófullkomin mótefni. Með Coombs’ prófi er leitað að sérstakri tegund mótefna, sem nefna mætti á íslenzku ófullkomin mótefni, en ganga undir ýmsum nöfnum, albumin-acting antibody, incomplete antibody, late(mature) antibodies, blocking antibodies, univalent antibodies, hyper-im- mune antibodies eða glutinin. Full- komin mótefni mætti kalla þau, sem enskumælandi menn nefna

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.