Læknaneminn - 01.04.1957, Blaðsíða 6
6
LÆKNANEMINN
upp of mikið magn af joði og með-
ferðin tekur of langan tíma. Einn-
ig er efni þetta notað postopera-
tivt, eftir að cancer gland. thyroi-
deae hefur verið tekinn burtu.
Meðferð þessi hefur einnig verið
notuð við hjartasjúklinga með
svæsna angina pectoris, sem ekki
hefur látið undan neinni annarri
meðferð. Birti ég skýrslu, sem mér
var sýnd á „The Thyroid Clinic“,
Massachusetts General Hospital,
Boston.
Eru það 463 sjúklingar frá 49
spítölum í Bandaríkjunum. Þjáðust
þeir allir af hjartabilun með svæsn-
um (,,intractible“) angina pectoris
köstum, og var þeim öllum gefin
radioaktiv joð-meðferð:
ágætur árangur ... 27%
góður árangur .. 41%
óbreytt ástand 32%
Meðal 50 sjúklinga með Cor pul-
monale sökum ,,primær“ hyperten-
sion í lungnahringrásinni, asthma
og annarra orsaka, fékk helming-
ur bata við þessa meðferð.
Meðferðin er í því fólgin, að
efnaskipti sjúklingsins eru lækkuð
með radioaktivu joði það mikið,
að hann fær öll einkenni um hypo-
thyroidismus, og þarf þá síðar að
gefa Tabl. gland. thyroideae til að
halda sjúklingnum í neðri röndinni
á takmörkum hinna eðlilegu efna-
skiptamælinga.
Væri óskandi, að Landsspítalan-
um auðnaðist að afla sér útbún-
aðar til þessara rannsókna og með-
ferðar áður en langt um liði, enda
er nú 10—15 ára reynsla fengin
á þeim stofnunum, sem fyrst tóku
rannsóknir þessar í notkun.
II. Meltingarsjókdómar.
Aukið histaminpróf.
Gefið er „antihistamin", t. d.
mepyramine 400 mg. pro. inj. og
i/2 klst. síðar histamin 0,4 mg pr.
1Ö kg. Magainnihald er síðan tekið
upp 15 mín. og 45 mín. eftir hista-
mingjöfina. Fær fólk þá engin ó-
þægindi eftir svo stóran histamin-
skammt, og hjá 5% af „histamin-
refraktær“ fólki finnst frí sýra
með þessari aðferð.7)
„Slöngulaus“ magarannsókn.
Við þessa rannsókn eru notuð
margs konar „cation exchange re-
sin“ með chinin-jónum. Gefið sem
töflur, og þegar frí sýra er í mag-
anum, losna chinin-jónirnar og
skiljast út með þvagi, og má finna
þær þar á ýmsan hátt, eftir því
hvaða lyfjasamband er notað.
Á lyfjadeild Landsspítalans er
sem stendur notað svokallað Dia-
gnex-próf (Chinin Carborylic Re-
sin).
Prófið er framkvæmt þannig, að
sjúklingi, sem er fastandi að
morgni, eru gefnar tvær töflur,
sem innihalda coffein til að örva
sýruframleiðslu magans. — Ganga
þarf eftir, að kastað sé þvagi, áð-
ur en prófið hefst, og er því þvagi
hent. Síðan er sjúkl. beðinn að
kasta þvagi einni kl.stund eftir
inntöku coffeintaflanna og það
þvagsýni merkt I og geymt til
samanburðar við þvagsýni II. Þá
er gefið „granulat", sem inni-
heldur „resinið“, og sjúklingurinn
látinn kasta þvagi tveim kl.tímum
síðar (þvagsýni II), og litast þá
þvagið blátt af því ,,azur“-sam-
bandi, sem resinið inniheldur, sé
um fría magasýru að ræða.
Þvagið getur haldizt blátt eða
grænleitt allt upp í nokkra daga,
en slíkt er talið meinlaust.
Nýrnasjúkdómar, meltingar-
sjúkdómar stenosis pylori og lifr-
arsjúkdómar valda ónákvæmni í
útkomunni.