Læknaneminn - 01.04.1957, Síða 8
8
LÆKNANEMINN
Frá tannlæknadeildinni:
CARIES PROPHYLAXIS
eftir prófessor Jón Sigtryggsson.
Caries dentium eða tannskemmd-
irnar munu vera einn algengasti
civilizations sjúkdómur vorra tíma.
Útbreiðsla hans er svo geigvænleg,
að öll viðleitni manna til þess að
stemma stigu hans með fjölgun
tannlækna og auknum tannvið-
gerðum hefir reynzt ónóg. Því til
sönnunar skal greint frá athug-
unum, sem gerðar voru á Norð-
urlöndum.
Þar sem flestir voru tannlækn-
ar, var einn tannlæknir fyrirhverja
1800 íbúa, en þrátt fyrir það var
ekki unnt að vinna nema út hluta
þeirra tannviðgerða, sem þörf
var á.
Það er því nokkuð langt síðan
mönnum var það ljóst, að það var
hverju þjóðfélagi ofviða fjárhags-
lega að fjölga svo tannlæknum, að
hægt væri að sjá öllum fyrir að-
gerðum þegar í stað, og að leita
varð einhverra ráða til þess að
verjast þessum vandræðum. Til
þess að geta varizt einhverjum
sjúkdómi, er nauðsynlegt að þekkja
orsakir hans.
Á síðustu áratugum hafa tann-
skemmdirnar verið rannsakaðar
mjög, og orsakir þeirra, ýmsar,
leiddar í ljós, en þó er margt enn-
þá óráðið. Flestir vísindamenn á
þessum vettvangi eru þeirrar skoð-
unar, að tannskemmdirnar byrji
þannig, að bakteríur í munni vinni
sýrur úr kolvetnum fæðunnar, sem
setjast á yfirborð tannanna, og
sýra þessi leysi síðan upp gler-
unginn. Bakteríurnar geta mynd-
að sýru mjög ört, og 5 mínútum
eftir sykurneyzlu getur sýrumynd-
unin hafizt og á 1—2 tímum náð
þeim styrk, er nægi til þess að
leysa upp glerung tannanna.
Af þessu má ráða, að erfitt
muni vera að ráða bót á þessu, en
ýmislegt hefir þó verið reynt með
allgóðum árangri. Tvær leiðir hafa
þar öðrum fremur reynzt vænleg-
ar. Annars vegar er að auka svo
viðnám tannanna, að sýrur, sem
myndast á yfirborði þeirra, vinni
ekki á glerungnum, hins vegar að
minnka sýrumyndun á tönnum,
annað hvort með fæðuvali, hafna
sumum tegundum kolvetna, eða
eyða bakeríum þeim og enzymum,
sem súrnun valda. Auka má við-
nám tannanna gegn sýrum, með
því að gæta þess, að ávallt sé nóg
af öllum þeim efnum, sem að kölk-
uninni stuðla, allan þann tíma, sem
tennurnar eru að þroskast, svo
ytra borð þeirra verði sem harð-
ast og þéttast. Þá er og reynsla
fengin fyrir því, að með því að
bæta fluor í fæðuna. má auka við-
nám þeirra fyrir sýrum.
Kölkun barnstanna hefst á
fjórða mánuði meðgöngutímans,
og er lokið er barnið er ársgam-
alt. Kölkun fullorðinstanna hefst
við fæðingu og lýkur um 7—8 ára
aldur, að endajöxlum þó undan-
teknum, en kölkun þeirra lýkur 12
—14 ára. Allan þennan tíma, það
er að segja síðari helming með-
göngutímans, og þar til barnið er
6—8 ára, ber því að gæta þess
að fæðan, fyrst móðurinnar og síð-
an barnsins, er það fer að njóta