Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1957, Qupperneq 19

Læknaneminn - 01.04.1957, Qupperneq 19
LÆKNANEMINN 19 rekte Coombs’ próf jákvætt, en indirekte neikvætt. I sumum tilfellum, „symptoma- tiskra“ hæmolytiskra anæmia (Hodgkin, leucæmia, lupus, ery- thematosus diss., cancer með meta. stösum, dermoid cystur, lifrarsjúk- dómar) er Coombs’ próf jákvætt, en hins vegar neikvætt við sickle- cell anæmia, paroxysmal noctur- nal hæmoglobinuria og við hæmo- lysis vegna kemiskra og fysiskra áhrifa. Skekkjuvaldar. Þess ber að gæta, að Coombs’ próf er alls ekki fullkomlega örugg rannsóknaraðferð, fremur en aðr- ar seroreaktionir. Ekki er víst, að allir fái sambæiilegar niðurstöður, vegna þess að Coombs’ serum má vinna á nokkuð mismunandi máta og fara misjafnlega með. Aðferðin við vinnsluna er í sjálfri sér svo ónákvæm, að um fyllilega sam- bærilegt magn eða gæði mótefn- isins getur ekki verið að ræða í öllum prófunum, jafnvel ekki í sömu rannsóknarstofu. Ástæða er til að minna á að merkja glösin nákvæmlega og forðast að rugla blóði. Jafn ein- faldir hlutir vilja stundum gleym- ast, en eru langhættulegasta og sízt afsakanlega orsök mistaka, svo sem rangra blóðflokkana og bess háttar. Gæta verður þess, að þvo blóð- kornin vel og nota hrein glös við rannsóknina. Minnsti vottur af serum í þeim getur valdið nei- kvæðri svörun. Blóð, sem prófa skal, á að geyma sem stytzt og þá á köldum stað. Annars geta blóðkornin orðið pan- agglutinabel (gerlagróður o. fl.). Prozonefyrirbæri vegna óheppi- legra hlutfalla antigens og mót- efnis geta truflað prófið. Gæta verður þess, að ekkert af hlaupvef naflastrengsins (Whar- ton’s hlaupi) lendi saman við blóð- ið, því að það getur valdið agglu- tination og rangri jákvæðri svörun. Jákvætt Coombs’ próf eitt sér er því ekki nægilegt til þess að greina megi Rh-sensitisation eða aðra sjúkdóma, er fyrr voru tald- ir, með fullri vissu. Aðrar rann- sóknir og klinisk einkenni verður einnig að vega og meta hverju sinni. Guðmundur Péturson stud. med. Heimildarrit: 1. Robert L. Wall: Practical Blood Grouping Methods. Charles C. Thom- as Publisher, Springfield, U.S.A. 1952. 2. T. R. Harrison et. al.: Principles of Internal Medicine. Second edition, 1954. The Blakiston Company. Inc., New York. 3. The Yearbook of Pathology and Cli- nical Pathology 1954—1955. Edited by W. B. Wartman. The Year Book Publisher. Inc. 200 EAST Ulinois Street, Chicago II.

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.