Læknaneminn - 01.04.1957, Qupperneq 20
20
LÆKNANEMINN
Rabb um félagslíf í Háskóla íslands.
Eitt af því, sem veldur nýstú-
dentum hvað mestri undrun og
vonbrigðum, er þeir hef ja nám við
Háskóla Islands, er hin mikla deyfð
og áhugaleysi, sem einkennir fé-
lagslíf háskólastúdenta. Þeir reka
sig á það, að félagslíf almennt
stendur langt að baki því, sem
á sér stað 1 menntaskólunum. Þetta
er staðreynd, sem flestir viður-
kenna.
En hvað er það þá, sem veld-
ur því, að háskólastúdentar eru
í heild svo sundraðir og samtaka-
máttlaus hópur, sem raun ber vitni,
hópur, sem fljótt á litið virðist
eiga fátt annað sameiginlegt en að
sækja kennslustundir hjá sömu
kennslustofnun ? Hér á eftir mun
reynt að leiða að þessu nokkrar
getur.
Það skal tekið fram nú þegar,
að hér í greininni er alls staðar
átt við sameiginlegt félagslíf stú-
denta. Mörg félög innan skólans
starfa vel og á ég þar við deild-
arfélögin og hin tvö kristilegu fé-
lög, en starfssviði allra þessara fé-
laga eru eðlilega settar skorður.
Skal nú vikið að öðrum ,,lifandi“
félögum meðal stúdenta. Taflfé-
lag er starfandi, en mætti gjarna
láta meira að sér kveða, t. d. með
því að gangast fyrir mótum innan
skólans og fjöltefli. Ætti það að
vera auðvelt, slíku úrvali sem skól-
inn hefur á að skipa góðra skák-
manna.
Þá er í skólanum félag, er nefnir
sig Stúdentafélag háskólans. Sér
það um Rússagildi ár hvert, en
um aðra starfsemi er ókunnugt.
Virðist leynd mikil hvíla yfir fé-
lagi þessu. Raunverulegir meðlim-
ir eru, að því er ætla má, fáir
útvaldir og aðalfundir hafa tíð-
um farið mjög laumulega fram.
Er sennilega óttazt, að of marg-
ir reyni að komast í stjórn fé-
lagsins, en hún er sögð njóta ó-
nefndra fríðinda löngu eftir að
hlutverki hennar er lokið.
Skemmtifélag Garðbúa gengst
fyrir Garðböllum. Hafa þau það
helzt til síns ágætis, að þar er vín
selt við fremur vægu verði og öl-
teiti gífurleg. Eru þar að mestu
upptaldir kostir þeirra. Ég held
að gera mætti Garðböllin mun
skemmtilegri án mikillar fyrir-
hafnar, gefa þeim þann blæ
stemningar og stúdentsanda, er
þau skortir svo tilfinnanlega. Ekki
þyrfti annað til að gefa þeim
skemmtilegri og menningarlegri
svip en að einhver góður maður
væri fenginn til að stjórna almenn-
um söng, svo að maður minnist
nú ekki á, að séð væri fyrir nokkr-
um skemmtiatriðum. Garðböll eru
ekki svo oft á vetri hverjum, að
ekki mætti vanda ofurlítið til
þeirra. Gæti Skemmtifélag Garð-
búa tekið samkomur Stúdentafé-
lags Reykjavíkur sér til fyrir-
myndar.
Þá er röðin komin að þeim
félögum, sem ráða lögum og lof-
um í félagslífi stúdenta, pólitísku
félögunum. Það eru þau, sem velja
menn í stúdentaráð. Hvernig hafa
þau rækt sitt forustuhlutverk ?
Hefur félagslífið blómgast undir
stjórn hinna pólitísku stúdenta-
ráða? Hefur samhugur og eining
aukizt meðal háskólastúdenta ? Nei
og aftur nei. I félagslífin hefur
verið kyrkingur undanfarin ár.
Leikfélag stúdenta er dautt og
sömuleiðis Karlakór háskólastú-