Læknaneminn - 01.04.1957, Síða 21
LÆKN AN EMINN
21
denta og ekki horfur á upprisu í
bráð, svo að einhver dæmi séu
nefnd. Og sjálf pólitísku félögin
eru svo til steindauð allan ársins
hring að undanskildum einum
mánuði, þegar kosningar til stú-
dentaráðs fara fram. Þá leikur
skólinn á reiðiskjálfi undan póli-
tískum sviptibyljum, fjöldi áróð-
ursblaða er gefinn út og sægur
manna fer á sálnaveiðar. Æsing-
arnar væru ekki meiri, þó að sálu-
hjálp allra háskólastúdenta um
tíma og eilífð væri undir því kom-
in, hver úrslit kosninganna yrðu.
Framboðsfundur er haldinn í há-
tíðasal háskólans. Fráfarandi
stjórn stúdentaráðs gefur skýrslu
um afrek sín, sem jafnan verða
furðu drjúg. Síðan hefjast umræð-
ur, ekki málþing, sem hver Jón
.Tónsson úti í sal getur tekið þátt
í, ef honum býður svo við að
horfa, nei, hér fá aðeins pólitísk-
ir forustusauðir að stíga í pontu
til að svívirða hver annan og lofa
eigið ágæti. Væri ekki viðkunnan-
'egra. ef hinir fengju líka að láta
ljós sitt skína,þótt fundurinn kynni
þá að lengjast eitthvað? Svo renn-
ur dómsdagur upp og ég þarf ekki
að lýsa bifreiðastöðvum og skrif-
stofum. sem rísa upp á þeim drott-
ins degi. En betta er gleðilegur
dagur fyrir alla. Þegar talningu
lýkur. verður ljóst. að allir hafa
unnið meira og minna glæsilega
sigra, sem minnzt er í ýmsum
samkomuhúsum bæjarins. Glaður
og ánægður dansar ,,pöpullinn“
fram á nótt og síðan liggja fé-
löain í dvala til næsta hausts.
Það mætti ætla, að verkefni stú-
dentaráðs væru stórpólitísk og á-
"veiníngur mikill, fvrst menn eru
knsnir til þess, eftir því hverja
pólitíska skoðun beir aðhyllast, og
með bessu líka bra.uki og bramli.
Reyndin er þó allt önnur. Hlut-
verk stúdentaráðs er og á að vera
það eitt, að vinna að hagsmuna-
málum stúdenta og sjá um fram-
gang þeirra. Og sannleikurinn er
líka sá, að lítill sem enginn ágrein-
ingur er um þessi mál milli félag-
anna. Þá vaknar sú spurning, hvort
val stúdentaráðsmanna sé ekki ut-
an við starfssvið pólitísku félag-
anna. Eru ekki einhverjir aðrir
heppilegri til að velja fulltrúa stú-
denta Mundi ópólitískt stúdenta-
ráð ekki geta leyst störf ráðsins
eins vel og jafnvel betur af hendi?
Ég held, að framgangur hags-
munamála stúdenta mundi ekki
bíða neitt tjón við það, að með-
limir stúdentaráðs væru losaðir
undir flokkaokinu. Fáir munu
halda því fram í einlægni, að nú-
verandi fyrirkomulag sé það bezta,
sem völ er á. Það er einmitt þetta
fyrirkomulag, sem á mesta sök á
sundrung stúdenta og samtaka-
leysi á nálega öllum sviðum.
Það þarf að taka upp nýja skip-
an á vali stúdentaráðs. Æskilegast
væri, að það væri skipað fulltrú-
um hinna ýmsu deilda og þeir
valdir af viðkomandi deildarfélög-
um. Ef þetta yrði gert, mundi hið
pólitíska moldarflag liðinna ára
gróa með tímanum og heilbrigður
gróður ná að þroskast og dafna.
Nú kann einhver að spyrja:
Hvað er maðurinn að fara? Ætl-
ast hann til, að pólitísku félögin
verði lögð niður? Fjarri fer því.
Stúdentar eru pólitískir menn. Það
er eðlilegt og s.jálfsagt. Sem þegn-
um lýðræðisþjóðfélags ber okkur
að kynna okkur helztu stjórnmála-
stefnur, sem uppi eru hverju sinni
og taka afstöðu til þeirra. Það
er skylda okkar að mynda okkur
skoðanir um átök og atburði hér
heima og erlendis. Það er því ekk-
ert eðlilegra en að þeir stúdent-
ar sem aðhyllast sömu stjórn-