Læknaneminn - 01.04.1957, Page 22
22
LÆKNANEMINN
málastefnur myndi með sér félög.
En það er of langt gengið, ef póli-
tík er blandað í ópólitísk hags-
munamál stúdenta og stjórnmála-
félög háskólans reyra allt félags-
líf í helfjötra ofstækis og einsýni.
Pólitísku félögin eiga að starfa
innan eðlilegra takmarka. Þau eiga
að vera málfundafélög og gætu
háð hina grimmilegustu fundi sín
á milli nokkrum sinnum á vetri.
Að því gæti orðið hin bezta
skemmtun. Og það er pólitísku
félaganna en ekki stúdentaráðs að
gefa út pólitískar yfirlýsingar,
sem talsvert hefur verið framleitt
af á liðnum árum.
Hér að framan hefur verið rætt
um ýms félög stúdenta og kosn-
ingar til stúdentaráðs. Er þá komið
að stúdentaráði sjálfu og störfum
þess. Það hefur undanfarin ár stað-
ið fyrir almennum bókmennta-
kynningum, sem notið hafa mikilla
vinsælda og mættu gjarnan vera
fleiri. Er þetta sjálfsagður þáttur
í störfum ráðsins í framtíðinni. Þá
hefur starfað á vegum ráðsins
vinnumiðlunarnefnd og unnið á-
gætt starf. Má starfsemi hennar
ekki niður falla. Auk þessa hefur
stúdentaráð jafnan annazt hátíða-
höld 1. des. ár hvert og gefið út
blað þann dag. Einnig hefur það
séð um skemmtanir á gamlárs-
kvöld og síðasta vetrardag. Eru
nú að mestu talin þau störf stúd-
entaráðs, er snerta stúdenta al-
mennt.
Eins og ég sagði áðan er hlut-
verk stúdentaráðs fyrst og fremst
að vinna að hagsmunamálum stúd-
enta. Þetta hlutverk virðist stúd-
entaráði oftlega ekki þykja nógu
virðulegt. Það sýnist stundum
halda, að hlutverk þess sé að frelsa
heiminn, reynir að vera vasaút-
gáfa af alþingi, en ber keim kjafta-
samkundu.
Einstaklingar og nefndir fljúga
um allan heim við ærin kostnað og
„repræsentera" íslenzka stúdenta
á ótal þingum. Ferðalög þessi eru
án efa skemmtileg og uppbyggj-
andi fyrir þá, sem í þeim lenda,
en það er ekki nema svo örlítið
brot háskólastúdenta, að almennt
njóta stúdentar einskis gagns af
og fá ekki einu sinni reykinn af
réttunum í frásögn eða ferðasögu.
Er ekki stúdentaráð heldur ,,flott“
á þessu sviði? Það er gott og
blessað og sjálfsagt að halda uppi
samskiptum við erlenda stúdenta,
en þó aðeins innan skynsamlegra
takmarka. Mætti ekki fækka lang-
ferðum og snúa sér að almennari
verkefnum, t. d. gangast fyrir
móti norrænna stúdenta svo að
eitthvað sé nefnt.
Stúdentaráðs bíða mörg óleyst
verkefni. Sum eiga enn langt í
land, svo sem hjónagarður og fé-
lagsheimili stúdenta. Önnur mætti
leysa fljótlega, aðeins ef áhugi og
vilii til framkvæmda er fyrir hendi.
í Háskóla íslands eru, eftir því
sem ég bezt veit, aðeins tvö blöð
gefin út, Læknaneminn og Ulfliót-
ur. Ekkert blað er gefið út af stúd-
entaráði fyrir stúdenta almennt.
Hér er verkefni fvrir ráðið, eitt af
átján. Það er ekki vanzalaust, ef
ekki er hægt að halda út blaði í
svo fjölmennum skóla.
Ýmsum mun finnast, að mikils
sé hér krafizt af stúdentaráði. En
við verðum að vera kröfuharðir,
bæði við okkur sjálfa og stúdenta-
ráð, sem er forusta okkar. Áliti
stúdenta meðal almennings hefur
lengi farið heldur hrakandi og ekki
algerlega að ástæðulausu. Það er á
valdi okkar sjálfra og engra ann-
arra að breyta þessu áliti og bætn
það.
Losum okkur undan oki hinnn
pólitísku félaga. Það er fyrsta