Læknaneminn - 01.04.1957, Side 32
32
LÆKNANEMINN
án aukins tilkostnaðar eða breyt-
inga á grundvallarskipulagi deild-
arinnar. Framkvæmd þeirra myndi
tvímælalaust koma í fastari skorð-
ur og bæta hina verklegu kennslu.
Stúdentar væru sammála um að
henni væri mjög ábótavant. Benti
Leifur á nokkur atriði, sem hon-
um þóttu miður fara í f ramkvæmd.
T. d. gæti ómögulega talizt heppi-
legt, að stúdentar hefðu á hinum
6—7—8 ára langa námstíma sín-
um aldrei tækifæri til að gera að
beinbroti undir handleiðslu æfðra
lækna. Að lokum ræddi hann um
teoretísku kennsluna í kúrsusum
og mælti eindregið til, að hún
yrði aukin. Einnig að einhverju
hentugu skipulagi yrði komið á
kennsiu aukafaga.
Sig. Þ. Guðmundsson stakk m.
a. upp á að barnasjúkdómar yrðu
aðaifag, til samræmis við það, sem
tíðkast við alla erlenda læknaskóla,
og kvað ófært að láta verklega
kennslu stranda á óvilja sjúklinga.
„Því ekki að nota stúdentana
sjálfa?“ Stúdentar æfðu sig hver
á öðrum, er þeir lærðu ýmsar um-
búðir, venepuncture o. s. frv.
Sigurður gat þess að lokum, að
það væri undir áhuga stúdentsins
sjálfs komið að nokkru, hversu
honum nýttist kúrsustíminn — og
stakk því að samstúdentum sínum,
að um furðu margt mætti fræðast
af kandídötum, „þeir luma á ótrú-
lega mörgu, ef vel er að þeim
farið.“
Síðastur talaði formaður. Hann
sagði meðal annars, að það væri
gleðilegt, hve sammála ræðumenn
hefðu verið um umræðuefni fund-
arins. Hann lagði áherzlu á, að
þessum fundi og þessum tillög-
um hefði aðeins verið hugað að
brjóta ísinn, fá félagsmenn til að
hugleiða þessi málefni.. Málið væri
ennþá lítið undirbúið, en krefðist
mikils undirbúnings, og því væri
bezt að fá það í hendur nefnd stú-
denta.
Að síðustu var samþykkt, að
stjórn Félags læknanema skipaði
fimm manna nefnd, sem ynni að
málum þessum.
Misheppnuð röksemdafærsla.
Læknirinn var að reyna að sann-
færa sjúklinginn um skaðsemi
reykinga og ákvað að beita þeim
rökum, sem allir geta skilið, þ. e.
rökum kostnaðarhliðarinnar.
L.: Hvað kosta þessir vindlar,
sem þér reykið?
S.: 5 kr. stykkið.
L.: Hvað reykið þér marga á
dag?
S. (Blæs bláum reykjarhringj-
um framan í L.): 10.
L.: Það eru 50 kr. á dag. Hvað
hafi þér reykt lengi?
S.: I 30 ár.
L:. (Hristir höfuðið með hlut-
tekningu): 30 ár. Það eru yfir
tíu þúsund dagar á 50 kr. — yfir
hálf milljón. Gerið þér yður ljóst,
að þér gætuð verið eigandi hótels-
ins þarna, ef þér hefðuð ekki reykt
í þessi 30 ár.
S. (Drepur í vindilstubbnum) :
Reykið þér læknir?
L.: Nei.
S.: Eigið þér hótelið þarna?
L.: Nei.
S. (Kveikir í nýjum njóla og
hóstar óskaplega): Ég á það.
Úr tíma í réttarlæknisfræði:
„Það eru tvær manntegundir,
sem eru ákaflega ómóttækilegar
fyrir rökum. Það eru alkoholistar
og söngvarar. Alkoholistinn held-
ur aldrei, að hann sé alkoholisti
— og söngvarinn heldur alltaf, að
hann sé söngvari."