Læknaneminn - 01.12.1962, Síða 22
LÆKNANEMINN
Jj/TSTJOHNUi-
Éaum
Heilsubótargöngur og skipulagið — Vísindaferðir að Klepjíi —
Herferð f jármálast,jórans — Týnd verðmæti — Prósentin sjö og bruðiið.
Svo bar til einn góðviðrisdag í
nóvember s.l., að nokkrir ágætir
kollegar í síðasta hluta tóku á
rás í hinu akademíska kortéri
(sem oft er jú bara fimm mín-
útur og jafnvel ekkert), skálmuðu
út af Landsspítalalóðinni niður
Barónsstíginn austur Hringbraut
og síðan yfir lóðina að nýju og í
næsta tíma. Því miður kom í Ijós,
að hér var ekki um að ræða reglu-
lega heilsubótargöngu heldur var
labb þeirra af mjög svo ómerki-
legu tilefni og hafði hreint ekkert
með heilsufarið að gera. En þetta
varð til þess að vekja athygli
okkar á því, að við aumir í mið-
og síðastahluta iðkum heilsubótar-
göngur reglulega og sjá okkar
ágætu lærifeður fyrir því. Þeir
geta nefnilega ekki komið kennsl-
unni fyrir á einum stað heldur
cru tímarnir ýmist á Landspítal-
anum, Rannsóknarstofunni eða í
Háskólanum. Víst ber ekki að
lasta heilsubótargöngur né held-
ur erum við sannanlega öðrum
sporlatari, en þegar iðulega er
sneytt af hinu akademíska kortéri
og rösklega kílómeters leið til
hinnar næstu kennslustofu í næsta
tíma verður sá hinn sami mjög
svo tæplega þrjú kortér svo ekki
sé meira sagt. Skipulagið gæti
semsagt þarfnast endurskoðunar.
—o—
Tómas Helgason, yfirlæknir,
hóf kennslu í geðsjúkdómum í síð-
asta hluta á þessu misseri. Hefur
hann tekið upp þann sið að fara
með lærisveinana einu sinni í viku
inn að Kleppi og hefur þar á tak-
teinum lifandi dæmi urn þá kvilla,
er þeir hafa verið að lesa um.
Þessar heimsóknir að Kleppi hafa
konferensinn fyrir ofan garð og
neðan hjá mér, sem ég hefði ann-
ars getað haft gagn af. En þrátt
fyrir þetta lærði ég sitthvað, enda
varla hægt við því að búast að
maður læri mikið í ortopediu á
einum mánuði. Tilgangurinn með
dvölinni var heldur ekki sízt sá
að kynnast vinnunni og andrúms-
loftinu á dönskum spítala og verð-
ur ekki annað sagt en að þau kynni
hafi verið góð. Ég vil því eindregið
hvetja til þess að við höldum uppi
stúdentaskiptum við Dani fram-
vegis.
T. Á.