Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Page 34

Læknaneminn - 01.03.1974, Page 34
VÍSINDAIEIÐANGUR 1973 Eftir mikið fum og fuður ákvað fulltrúaráðið að breyta til í tilhögun vísindaleiðangra félagsins og að- skilja hafrana frá sauðunum, þ.e. að senda eldri reglugerðarmenn til Isafjarðar en þá eftir hinni nýju lil Akureyrar. Stafaði þetta í og með af gífurlegri þátttöku þar sem 140 manns skrifuðu sig á listana og er það meira en nokkur aðili kærir sig um að fá yfir sig svo ekki sé meira sagt. Álíka margir voru af báðum reglugerðum og stuðlaði það einnig að þess- ari skiptingu. Vegna þess að undirskriftir voru al- gjörlega hindandi reyndist þátttaka meðal hinna eldri ca. 50% eða 39 og vil ég benda fulltrúaráðum að hagnýta sér þessa útreikninga fyrir næstu leið- angra. Hér í þessum pistli verður aðeins reynt að lýsa ferðinni til Isafjarðar eftir því sem næst sanni þykir og minni leyfir. Eins og venjulega byrjuðu veðurguðirnir á því að hrella menn og seinka brottför og voru margir farnir að tvístíga heima hjá sér eða úti á flugvelli. Sumir voru þó ekki á þeim buxunum og voru staðráðnir í að láta slíkt ekki hindra vísindastörfin og hófu grunnrannsókn hér heima til að flýta fyrir megin- rannsóknum enda hafa þessir menn hlotið næstum landsfrægð fyrir útsjónasemi á þessu sviði og al- mennt talið að þeir séu hinir efnilegustu vísinda- menn. Loksins um kl. hálf tvö 17/11 ’73 var lagt í gerðu þegar heila þá er þeir höfðu drepið, en fyrir- komu þeim er úr orrustu flúðu. Deildarmenn gerðust nú ódælir mj ök ok hófu þeir að vega menn í öðrum héröðum, þar sem áður hafði ríkt friður ok þóttust menn hvergi hultir fyrir ofríki þeirra, því að svo bar við, að Skammkell reikni- meistari fór með ófriði á hendur útilegumönnum þeim, er í vetur fimm höfðu hafst við á skaga þeim, er Útskagi nefndist. Bauð hann þeim til bardaga ok fór brátt svo, að munnhjuggust mjök hlífar þeirra ok féllu þar sex þeirra fyrir Skammkeli. Barst nú frægð þeirra Deildarmanna víða ok var haft á orði, að hvergi mætti á einum stað á íslandi finna svo marga kappa saman komna á einum stað, ok jókst hróður þeirra dag hvern, ok lýkur svo fyrsta þætti Sauðskinnu hinnar meiri. Hrafnkell Óskarsson. 24 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.