Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 37

Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 37
Augnlœknisþjónusta d Islandi Guðmundur Björnsson, lœknir Laugartlaginn 11. oht. sl. var haltlinn luntlur á Landahotsspítala, sem fjall- a&i uni augnverndarniál á íslantli. lSirtist cfni hans hcr meif gó&fáslcgu lcgfi höfundar. 1. Sjónvcrnd 1-1. A síðari árum hefur læknisfræðin þróast æ meir í þá átt að koma í veg fyrir sjúkdóma, því betra er heilt en velgróið. Hefur því verið réttilega haldið fram að bezta fjárfestingin sé heilsuvernd þ. e. sj úkdómavarnir, bæði hvað snertir einstaklinginn og þjóðfélagið. Ennþá er læknisfræðin ekki komin á það stig að geta fyrirbyggt nema hluta þeirra sjúkdóma og kvilla, sem á mannkynið herja. Þó bætast æ fleiri og fleiri sjúkdómar í hópinn, sem unnt er að koma í veg fyrir eða að draga úr þróun þeirra, finnist þeir á byrjunarstigi og áður en þeir gefa augljós einkenni. 1.2. Á sviöi augnlækninga beinist þróunin æ meira að sjónvernd þ. e. að koma í veg fyrir sjóntap eða blindu. I mörgum tilvikum er hægt að koma í veg fyrir varanlegt sjónta|) með við- eigandi aðgerðum, sem einkum beinast að því að finna ýmsa blinduvaldandi sjúkdóma áður en þeir segja til sín með augljósum einkenn- um. Augnslys og eitranir, sem orsaka varan- legt sjóntap, er oft hægt að fyrirbyggja. Með- fædda blindu er stundum hægt að fyrirbyggja sbr. blindu af völdum rauðra hunda. 1-3. I þessu erindi verður rætt um augnlæknis- þjónustu hér á landi eins og hún er í dag með sérstöku tillili til sjónverndarmála og komið fram með nokkrar tillögur til úrbóta. 2. Shilgrcining hlindu 2.1. Skilgreining blindu og „sjóndepru“ (partial sight). Blindutíðni hvers lands er nokkur mælikvarði á það hvernig að sjónverndarmál- um er búið, en þó ekki einhlítur. Samkvæmt skilgreiningu WHO á blindu, er sá talinn blind- ur, sem hefur sjónskerpu 6/60 (20/200, 0.1) eða minna á betra auga með bezta gleri eða minna en 20 gráða sjónsvið á betra auga (1). Blinda á öðru auga getur haft mikla áhættu í för með sér og getur verið til mikilla óþæg- inda, einkum ef sjóntapið verður á fullorðins- aldri, því að fjarlægðar- og dýptarskyn rask- ast. Blindu er skipt í alblindu, þegar sjón er engin eða nær engin, og starfsblindu eða social- blindu. Starfsblindir komast leiðar sinnar á ókunnum stað, en geta ekki sinnt sínum fyrri störfum, vegna lélegrar sjónar. Blinda á öðru auga er metin 20% örorka, en blinda á báðum augum 100% örorka. Með sjóndepru eða hálfblindu (partial sight) er átt við sjónskerpu 6/18-6/60 á hetra auga með bezta gleri. Er lestrarsjón þá orðin mjög skert og venjulegt bókaletur ólæsilegt. Börn með slíka sjón þurfa á sérkennslu að halda. S. llversu tnargir eru hlindir hcr á lantli? 3.1. Þar sem blinda er lokastig ýmissa augnsjúk- dóma er æskilegt að fá sem gleggsta vitneskju urn blindutíðni. Er blinda líðari eða fátíðari hér en með öðrum þjóðum? Verður nú leitast við að svara þessum spurningum. 3.2. Blindraskráning héraðslœkna. Héraðslæknar eiga að skrá blinda í héruðum sínum. Að von- læknaneminn 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.