Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 56
Tillögur um tilhögun kandidatsárs
Lœhnanenianuin hefur borist eintah
mf tillihiu um shipulmfninsfu kamli-
datsársins. I»essi t illuifa var saniþifkkt
á deiltlarfundi nú fyrir skönunu. Aif
tillöyunni stóö nefnd skipuö af Itekna-
deiltl. í lienni sátu:
Sigurður S. Maynásson,
Gunnar Gunnlaugsson,
Tónias Á. Jónasson,
Stefán Karlsson,
I yyi Aynarsson.
Forsendur tiUayna nefndarinnar
1) Fjöldi stúdenta, sem útskrifast næstu 5 árin, er
meiri en hingað til hefur verið. Má gera ráð fyrir,
að 67 kandidatar útskrifist 1976, 40 árið 1977, 60-
70 árið 1978 og a. m. k. 70 1979.
2) Ráðning í kandidatastöður hefur ekki verið á
einni hendi og því verið tilviljanakennd og óskipu-
lögð með þeim afleiðingum, að kandidatsþjálfun
hefur oft tekið óhóflega langan tíma.
3) Flest lönd, sem ungir, íslenskir læknar sækja
framhaldsmenntun sína til, krefjast núorðið lækn-
ingaleyfis í heimalandi umsækjanda, eða a. m. k.
auðveldar lækningaleyfi umsækjendum mjög aðgang
að framhaldsnámi.
4) Margar aðstoðarlæknisstöður, sem kandidatar
geta lært talsvert af að sitja, hafa ekki verið viður-
kenndar til kandidatsþjálfunar. Dæmi eru röntgen-
deild, svæfingadeild, Rannsóknastofa Háskólans, svo
að eitthvað sé nefnt. Viðurkenning á þessum deild-
um myndi fjölga kandidatsstöðum, auk þess sem
auðveldara yrði fyrir deildirnar að öðlast starfs-
kraft.
5) Afnám 2ja mán. skylduvinnu á fæðingadeild
er nauðsynleg vegna þess, að aðeins eru 5 stöður á
fæðingadeild í landinu, sem geta ekki annað nema
30 kandidötum á ári. Nú þegar er Fæðingadeild
Landspítalans bókuð fram í janúar 1977, og er þá
enn eftir að telja hópinn, sem útskrifast vorið 1975
og alla þar á eftir. Þessi skylduvinna er nú ekki
jafn nauðsynleg og áður, vegna þess, að námsdvöl
og skipulag kennslu á fæðingadeild hefur lengst og
breyst til batnaðar með hinni nýju reglugerð.
6) Af ofangreindu má sjá, að reglugerðarbreyting
sú, sem lögð er til, getur ekki ein saman leyst að-
steðjandi vanda kandidata, þar sem fjöldinn sem
úlskrifast krefst þess, að hver og einn sé ekki mikið
lengur en 12 mánuði að Ijúka sinni kandidatsþjálfun.
Því þarf að skipuleggja námsdvöl kandidata þannig
að hún taki 12 mánuði og helst ekki lengri tíma.
Unnt er að framkvæma þetta með því að úthluta
hverjum kandidat stöðu-samstæðu í 12 mánuði, sem
veitir honum síðan rétt til að sækja um lækninga-
leyfi, hafi hann lokið héraðsskyldu.
Tillaya um reyluyerðarhreytinyu
1. gr.
„Til þess að kandidat í læknisfræði geti átt rétt á
að öðlast ótakmarkað lækningaleyfi og að heita
læknir skal hann að prófi loknu hafa lokið því
framhaldsnámi, sem hér greinir:
a) Hann skal hafa unnið kandidatsstörf eða sam-
svarandi aðstoðarlæknisstörf á viðurkenndu
deildarskiptu sjúkrahúsi (eða sjúkrahúsum) í
samtals 12 mánuði. Þar af er skylda að vinna
a. m. k. í 2 mánuði á lyflækningadeild og í 2
mánuði á handlækningadeild, en a. m. k. skulu
9 mánuðir vera unnir á ldiniskum deildum og
mest 3 mánuðir á rannsóknadeildum sbr. eftir-
farandi upptalningu:
46
LÆKNANEMINN