Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1975, Qupperneq 67

Læknaneminn - 01.10.1975, Qupperneq 67
Þó er hún þannig skrifuð, að hún þarf ekki að vera seinlesin, en ef svo, þá má á móti vinna tíma með því að sleppa oft og tíðum gagnslítilli tíma- sókn (Þ. V. G. undanskilinn). b) H. A. Harper: Review of physiological chemistry. Þessi bók spannar bæði áðurnefnd svið (a og b) og fjallar mjög vel um allt námsefnið og meira til. Hún er skrifuð fyrir læknanema og er t. d. mikið notuð í Svíþjóð. Mikið er rætt um ýmsa efnaskipta- sjúkdóma og fleira, sem tengir efnafræðina augljós- ar læknisfræðinni. Persónulega held ég, að þessi hók henti bezt þessum efnafræðikúrsus ein sér, en þeir sem tvinna þessar bækur saman m. t. t. a og b ættu að mínu mati að koma út með nokkuð góða þekkingu á faginu og það sem er e. t. v. mikilvæg- ara vel húnir undir prófið! Georg A. Bjarnason. Conn and Stumpf: Outlines of Biochemistry Það virðist vera eitt af höfuðvandamálum við lífefnafræðinám í læknadeild hvar besta lesefni fyrir einstaka þætti námsins er að finna. Eg keld að flestir muni sammála um að Outlines of Biochemistry sé heppilegasta Ijókin til lestrar sé á heildina litið. Að vísu er ekki að finna lesefni um h'karnsvökva, næringu og hormón í bókinni; það verður að lesa í öðrum bókum. í samanburði við Lehninger eru Conn and Stumpf reyndar ekki eins roálglaðir, lýsa lítt tilraunum og teygja ekki lopann urn of. Bókin er mjög auðlesin og skýringarmyndir yfirleitt góðar. Ég mæli með Conn and Stumpf við lestur eftirtalinna efnisflokka. Flest efnisatriði sem máli skipta koma þar fram: 1- Lífefnafræðilegar aðferðir . Appendix 2 2. Amínósýrur og prótein 4. kafli *>. Kjarnsýrur................ 5. kafli 4. Ivolhydröt................ 2. kafli 5. Fituefni 3. kafli 6. Ensím og ensímreaktionir . 8. kafli Vítamín og cóensím 9. kafli 8. Efnaskipli kolhydata 10. 11. og 13. kafli 9. Orkubúskapur ............. 7. og 14. kafli 10. Próteinsmíð ............. 19. kafli 11. Stjórnun efnaskipta 20. kafli Dalta and Ottaway: Biochemistry Þessi bók er mjög samþjöppuð og meginhluti text- ans er aðalatriði. Hún er að sama skapi seinlesin og síður en svo skemmtileg aflestrar. Datta and Ottaway er góð bók að því er varðar lestur eftir- talinna efnisflokka: 1. Efnaskipti fituefna. 2. Efnaskipti amínósýra og próteina. 3. Líkamsvökvar (að hluta). 4. Næringarfræði. Guðjón Baldursson. Hugleiðingar um „fíluna" Framhald af bls. 51. lega ekki fixeruð preparöt, heldur manneskjur. Það sem gerir mig að talsmanni fyrir því, að allir nem- endur H. \. verði skyldaðir til að taka fíluna, er að ég tel að menntun hafi gildi í sjálfu sér og að öll menntun eigi fyrst og fremst að gera fólk að betri manneskjum, en ekki að hálaunuðu yfirstéttapakki. Ég skora á alla læknanema að gaumgæfa þessi mál og að láta ekki hræðslu við prófin ráða ferðinni. Það er neínilega enn eitt merkið um nauðsyn fílunn- ar í deildinni. Við erum það mörg, að við getum og eigum að stuðla að betri læknadeild, en ekki bara enn fullkomnara færibandi. Stjórn Félags Lœkna- nema! Framgangur ykkar í þessu máli er ykkur til hinnar mestu vansæmdar. I fyrsta lagi, takið þið af- stöðu til málsins, án þess að spyrja félagsfund. Þessa afstöðu básúnið þið svo inni á deildarfundum og við kennslustjóra háskólans. Þegar þessu öllu er lokið, og ykkur vantar enn eitt vopnið í baráltunni, þá loks er haldinn félagsfundur um málið. Og í öðru lagi, þá hef ég aldrei heyrt þess getið að neitt ykkar hafi kynnt sér tillögur um nýskipan kennslu í forspjallsvísindum. Hvernig dettur ykkur eiginlega í hug, að taka afstöðu til máls, sem þið þekkið ekki og hvernig dettur ykkur í hug að bjóða almennum félagsfundi upp á að taka afslöðu að svo komnu máli? Og ein athugasemd til. Ég hef fregnað að einhver góður maður hafi stungið upp á því, að okkur væri leyft að velja á milli: fílunnar, erfðafræði, sálar- fræði og tölfræði. Veit aumingja maðurinn ekki, að þrennt hið síðarnefnda eru skyldukúrsar í deildinni? læknaneminn 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.