Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1975, Síða 68

Læknaneminn - 01.10.1975, Síða 68
Pistill stjórnar F. L Mörg mál, er varða læknanema, hafa verið í deiglunni frá því núverandi stjórn F. L. tók við. Mun ég í þessum pistli greina frá þeim, sem ég tel markverðust. AF LÆKNISSKOÐUNARMÁLINU: Eitt af fyrstu verkum þessarar stjórnar (fyrir utan að hækka félagsgjöldin og kauptaxtann) var að rita rektor og forseta læknadeildar bréf, þar sem við bentum á 33. gr. reglugerðar H. L, sem kveður á um læknisskoðun stúdenta. Töldum við þetta mál þarfnast endurskoðunar. Þar var háskólaráð okkur sammála og skipaði undirritaðan og deildarfor- seta í endurskoðunina. Þegar þetta er ritað er verið að ganga frá tillögum til háskólaráðs. Þær fela í sér m. a. að almenn ákvæði um læknisskoðun falli nið- ur, en í staðin verði stúdentum gert að skila berkla- vottorði tvisvar á námstímanum. Fyrir læknanema verður sérákvæði, þar sem lagt er til, að á 2. námsári gangist þeir undir nákvæma berklarannsókn og ónæmisaðgerð gegn berklum. Rannsóknin á svo að endurtakast á 4. námsári. I vetur verður þessi rannsókn framkvæmd á læknanemum 2. til 6. námsárs. Undirritaður vonast til, að í framtíðinni verði fleiri rannsóknir og ónæmisaðgerðir teknar upp. AF EMBÆTTAVEITINGUM: Stöðuveitingar í læknadeild voru mjög margar s. 1. vor. Ekki hafði stjórn F. L. afskipti af nema einni þeirra, þ. e. pró- fessorsstöðu í kvensjúkd. og fæðingarhjálp. Vegna frábærs slarfs S. S. M. við skipulagningu á námi í þessari grein ákvað stjórn F. L. að taka opinbera afstöðu með honum. Menntamálaráðherra var til- kynnt þetta bréflega og munnlega. Af hálfu ráðu- neytis gerðist ekkert í þessu máli næstu tvo mánuði, en þá virtist hafin pólitísk orusta, sem embættisveit- ingin myndi grundvallast á. Stjórn F. L. tók lítillega þátt í slagnum, sem endaði með því að S. S. M. var settur í embættið. Sem framhald af þessu máli, hyggst stjórn F. L. reyna að fá stúdentaráð til samstarfs um baráttu fyrir atkvæðisrétti stúdenta varðandi embættaveiting- ar innan H. I. AF MATSÖLU LANDSSPÍTALANS: í sumar hafði skrifstofa ríkisspítalanna samband við undir- ritaðan og tilkynnti að hér eftir fengju þeir lækna- nemar einir mat á Lsp., sem læsu þar á lesstofunni eða sæktu kúrsusa. Eg áskildi mér rétt til að óska eftir undanþágum og þeim sem flestum. Loks tókst það samkomulag, að þeir stúdentar, sem sækja fyrirlestra á Lsp.lóðinni fengju heimild til matar- kaupa á því tímabili, sem fyrirlestrarnir færu fram. Þetta þýðir í reynd að læknanemar á 3. ári og upp úr geta keypt mat á Lsp. mest allan veturinn. Nokkur töf varð á að stúdentar gætu keypt matarmiða og var orsökin sú að listar yfir stúdenta á hinum ýmsu stigum námsins, voru ekki tilbúnir fyrr en fyrst í októher. AF FÍLUNNI: Um aðdraganda þessa máls hefur verið ritað í Meinvörp og einnig greint frá á al- mennum félagsfundi, svo ég sé ekki ástæðu til að rekja það hér. Þann 5. nóv. barst bréf frá rektor, þar sem greint var frá því, að háskólaráð hefði hafnað beiðni stjórnar F. L. um undanþágu fyrir læknanema frá prófi í „fílunni“. Þær ástæður, sem gefnar voru í viðræðum við rektor voru, að fyrir dyrurn stæði endurskoðun á námi í „fílunni“ og ef læknanemar fengju undanþágu núna yrði það til þess að „fílan“ legðist niður án þess að tækifæri hefði gefist til að endurbæta námið. Til greina kom að læknanemar hunzuðu „fíluna“ og létu reyna á það hvort H. I. neitaði mönnum um prófskírteini, en ekki reyndist næg samstaða á 6. ári, þannig að við svo búið varð að gefast upp. 56 LÆKNANEMINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.