Læknaneminn - 01.10.1975, Blaðsíða 73
Stúdentaskipti árið 1975
Skipta mætti störfum stúdentaskiptastjóra í 2
þætti, 1) undirbúning stúdentaskipta, sem er aöallega
fólginn í bréfaskriftum og 2) móttöku erlendra
stúdenta á sumrin.
Undirbúningur stúdentaskipta fer einkum fram
á veturna og vorin. Bréfum og umsóknum er svarað
°g reynt að útvega umsækjendum spítalapláss sam-
kvæmt óskum þeirra, húsnæði er leigt og reynt að
afla fjár til starfseminnar.
Þetta árið gekk all vel að koma umsækjendum
fyrir á hinum ýmsu sjúkrahúsum og gátum við orð-
ið við öllum umsóknum, sem bárust fyrir 1. maí,
er umsóknarfrestur rann út. Ollum umsóknum, sem
komu eftir 1. maí, var svarað neikvætt.
Ollu verr gekk að útvega húsnæði. Undanfarin
ar hefur skiptinemunum verið komið fyrir á heima-
vist Sjómannaskólans og átti að reyna þetta eitt árið
enn. En í byrjun apríl er undirrituð hugðist festa
þetta húsnæði, var ekki ljóst hvort af þessu gæti
orðið vegna fyrirhugaðra breytinga á gluggabúnaði
skólans og þaki. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fékkst
ekki ákveðið svar fyrr en um 20. júní. Þá var til-
kynnt, að menntamálaráðuneytið hyggðist nýta
heimavistina undir kennara á sumarnámskeiðum. Þá
var leitað á náðir Iijúkrunarskóla Islands og þrátt
fyrir þennan stutta frest, ákvað skólastjórinn, Þor-
hjörg Jónsdóttir, að leigja Félagi læknanema 8
herbergi í júlí og ágúst. í fyrstu taldi hún ekki
Wóguleika á að hjálpa okkur með húsnæði í septem-
her, en þegar ljóst varð að einungis yrði um 2-3
stúdenta að ræða, samþykkti hún að leigja okkur
áfram. Aðstaða í skólanum er öll eins og bezt verður
a kosið, og voru stúdentarnir allir á einu máli um
það.
Verst gekk að útvega rekstrarfé. Vegna mis-
skilnings var úthlutun frá Stúdentaskiptasjóði Stúd-
entaráðs mun minni en árið áður. Þegar þetta varð
Ijóst voru umsóknir um styrki sendar til heil-
brigðismálaráðherra, menntamálaráðherra og próf-
gjaldasjóðs Háskóla Islands. Þessar umsóknir báru
misjafnan árangur. Neikvætt svar barst frá próf-
gjaldasjóði, og Menntamálaráðuneytið sendi 100
þúsund krónur um miðjan júlí (sbr. 300 þúsund
krónur árið 1974). Heilbrigðismálaráðherra sendi
hins vegar strax í júníbyrjun 150 þúsund krónur
(sbr. 75 þúsund krónur árið 1974).
Þessi slæma fjárhagsstaða olli m. a. því, hversu
fáir íslenzkir stúdentar sóttu um að fara utan. En
alls bárust 9 umsóknir um dvöl erlendis. Síðan
drógu 4 umsóknir sínar til baka, þrátt fyrir já-
kvæð svör, og var það einkum vegna óvæntra próf-
úrslila. Ekkert svar barst við 1 umsókn til Frakk-
lands þrátt fyrir ítrekuð tilmæli um að svara.
Þannig urðu ekki nema 4 íslendingarnir, sem fóru
utan eða:
Björn Tryggvason 3. ári til Finnlands.
Páll Ágústsson 3. ári til Italíu.
Vilhjálmur Andrésson 3. ári til Spánar.
Guðmundur Grímsson 5. ári til USA.
Frá Stúdentaráði fengu þeir hver um sig 15 þús-
und króna ferðastyrk. Síðan bætti Stúdentaskipta-
sjóður Félags læknanema við upphæðina, þar til
hún nam 60% fargjalds á áfangastað. Undantekn-
ing var gerð með Vilhjálm, sem fór nú í annað sinn
í stúdentaskipti. Hann fékk enga viðbót við 15 þús-
und krónurnar frá Stúdentaráði.
Það var mjög misjafnt, hversu fljótt hinir ýmsu
stúdentaskiptastjórar sendu staðfestingar til íslenzku
stúdentanna. T. d. fékk Páll engar fréttir frá Italíu
fyrr en 26. júní eða 4 dögum áður en hann átti að
mæta á staðinn. I Bandaríkjunum gátu menn ekki
útvegað Guðmundi húsnæði, og varð hann að bjarga
því sjálfur. Svar frá Spáni barst fyrst þegar
hingað var mættur Lopes nokkur Fernandes, sem
læknaneminn
61