Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Blaðsíða 8

Læknaneminn - 01.11.1977, Blaðsíða 8
lýsingu hans frá 17. des. 1968, sem hann gaf á Al- þingi, en þar sagðist hann aldrei mundu liða neinar takmarkanir inn í Háskóla Islands. Ráðherra mætli ekki en sendi fundinum bréf, sem fundarmönnum þótti þvælið og fullt af útúrsnún- ingum. Á fundinum kom einnig fram að ráðherra væri að leggja af stað kl. 10 um kvöldið frá Keflavík með Lagarfossi, í þriggja vikna sumarfrí. Það hvarflaði ekki að fundarmönnum að láta ráðherra sleppa svo billega, og var því í skyndi pantaður langferðabíll og á ritvél rektors útbúin yfirlýsing, sem hljóðaði svo: „Ég undirritaður, menntamálaráðherra íslands, lýsi því hér yfir að ég muni þegar í stað beita mér fyrir því, að dregin verði til baka heimild til að tak- marka aðgang að læknadeild.“ Þetta átti að fá ráðherra til að undirrita. Það var lagt af stað til Keflavíkur kl. 9 úm kvöld- ið og því bara klukkutími til stefnu, og hart lagt að bílstjóranum að draga ekki af druslunni. Hópurinn komst að skipshlið fyrir tíu og tveir fulltrúar voru sendir með yfirlýsinguna um borð, en þeir náðu ekki tali af Gylfa og hann undirritaði því ekki neitt. Klukkan tíu lagði skipið frá bryggju undir há- væru bauli hópsins. Þegar hér var komið sögu var takmörkunarmálið orðið mikið blaðamál og vel fylgst með því. Þess vegna hafði útvarpið reynt að fá Gylfa Þ. Gíslason með í umræðuþátt um málið, en hann neitaði. Og samtalsþáttur með fulltrúa nýstúdenta og tveim læknanemum fékkst ekki fluttur. En bregðum okkur nú aftur inn á deildarfund. Áður en ráðherra flúði land 4. júlí, hafði hann sent deildarfundi bréf þar sem hann hiður læknadeild um að koma með aðrar tillögur til takmörkunar en lág- markseinkunn á stúdentsprófi og 16. júlí kemur fram tillaga á deildarfundi frá Jóni Steffensen, svo hljóðandi: 1. Læknadeild taki við þeim hópi nýstúdenta sem aðstaða til verklegrar kennslu í efnafræði leyfi. Fari fjöldi þeirra fram úr því ræður stúdents- próf um inntöku í deildina. 2. Enda komi þá jafnframt til framkvæmda fyrri tillögur læknadeildar, til að koma í veg fyrir óviðráðanlegann fjölda í henni. En þær eru: a. Læknanema sem tvívegis hefur mistekizt að ná sama prófi er ekki heimill að endurinnrit- ast í deildina. b. Læknadeild er heimilt með upphafsprófi, að takmarka þann fjölda sem áfram heldur læknanámi, við þá tölu sem hún hverju sinm telur unnt að veita viðunandi kennslu. Hafi fleiri staðizt upphafspróf skal prófárangur skera úr. Og síðan á deildarfundi 6. ágúst er samþykkt að breyta áður settum einkunnartakmörkunum þannig: Að teknir verði svo margir nýstúdentar, sem aðstaða til efnafræðikennslu leyfði, að því til- skyldu að tillögur þær til breytinga á reglugerð H. 1. sem varða læknadeild og liggja til athug- unar í menntamálaráðuneytinu, gildi haustið 1970 (þ. e. nýja reglugerðin sem gerði ráð fyr- ir því að taka inn 24 á ári). Annan ágúst kom menntamálaráðherra aftur úr sumarfríi með Lagarfossi og tók þá sami hópurinn á móti honum, og kvaddi hann í Keflavík. Ástandið hjá stúdentum var þá þannig að 20 höfðu innritazt, en 38 (sem ekki höfðu tilskylda einkunn) hiðu með innritun. Þegar menntamálaráðherra frétti um stærð hóps- ins áleit hann að allir gætu innritast, og er ákveð- inn fundur með honum 6. ágúst í Arnarhvoli til að gera út um það mál. Það mættu margir á þann fund. Auk Gylfa voru þar fulltrúar læknanema, nýstúdenta, háskólakenn- ara, og blaðamenn. Á fundinum upplýsti ráðherra að læknadeild vildi helst fá Numerus Clausus, en það myndi hann aldrei samþykkj a. Einnig sagðist hann mundu fara fram á það við læknadeild að hún falli frá öllum kröfum sínum um takmörkun í deildina. Eins og að framan greinir samþykkti deildarfund- ur sama dag að inntaka í læknadeild mundi tak- 6 LÆKNANEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.