Læknaneminn - 01.11.1977, Blaðsíða 36
Mr. Parry og Maurice, sem átti að aðstoða við
krufningarnar.
Prófessorinn sjálfur leiðbeindi við krufningarnar
líka og reyndist hann hinn bezti lærifaðir.
Um kvöldið dundi yfir fyrsta rótarysamkoman
undir forystu Mr. Pearsons. Þar fengu menn hin
ýmsu boð í allar áttir: matarboð, snekkjuboð, krá-
arferðir og fleira. Rótarymenn sungu fyrir okkur
,,There is a hole in the bucket“ og vildu meina að
það væri eitt af höfuðþjóðlögum þeirra engilsax-
neskra. Við gauluðum „ríðum, ríðum“ undir stjórn
Páls T.
Var það álit manna að söngur hvorugra hefði
orðið þeim til neins sóma! ! Gildið hætti á kristileg-
um tíma, rótarymenn fóru heim að sofa, en lækna-
nemar skemmtu sér enn um stund inni á vist og stigu
þar ýmsir dansa hinna ýmsu þjóða við mikið góðar
undirtektir áhorfenda. Mitt álit er að þessi hópur
eigi tvímælalaust að stofna eigið Jsjóðdansafélag!
Nú skyldi enginn halda, að ekkert hefði verið
stundað nema hið ljúfa líf, en það var nú öðru nær.
Fyrirlestrar byrjuðu kl. 9.30 á morgnana og síðan
var krufið til ca. 16.00 á daginn og stunduðu rnenn
hvoru tveggja nokkuð vel (svona almennt séð). A
kvöldin var svo stunduð léttari iðja og verður nú
aðeins stiklað á stóru um það sem á dagana dreif
næstu vikurnar.
Farið var einn laugardag til Blackpool, sem er
nokkurs konar circusbær og þar töpuðu menn sér í
hinum ýmsu leiktækjum (gengu í barndóm) og
Brynjólfur borðaði ís meðan aðrir drukku bjór.
Síðan var farið í helgarferð til Wales og rúntað þar
Bindindismennirnir.
Litla Island viS hliSina á Brezka stólveldinu.
um og gist í Bangor, sem er háskólabær í N.-Wales.
Þar áttu sumir sínar beztu stundir inni í skápum
(nefnum engin nöfn). Ferðin þótti takast mjög vel
þrátt fyrir smábyrjunarörðugleika.
Síðast en ekki sízt var farið í óteljandi krár,
diskotek og klúbba, svo ekki sé minnzt á allt það
sem rótarymenn skipulögðu, okkur til ánægju og
yndisauka. Nokkuð stunduðu menn skemmtanalífið
og ódýra bjórinn misjafnlega, en þegar á heildina
er litið, má segja að þátttaka í hvorutveggja hafi
verið mjög góð.
Eg get ekki látið hjá líða að minnast sérstaklega
á klúbb einn sem okkur var sérlega hjartfólginn.
Við Greenbank House Club.
28
LÆKNANEMINN