Læknaneminn - 01.11.1977, Blaðsíða 48
2. ÁR
7. sept. 10. nóv. 20. jan. 20. marz 31. maí
Líffærafræði
— Höfuð — háls Lífefnafræði Sameinuð eðlis- og Sýklafræði
— Neuroanat. lífeðlisfræði Veirufræði
— Sérhæfð vefjafræði Onæmisfræði
2. árið
Hið gamla kerfi sem margir stúdentar kannast við
frá því í menntaskóla - þar sem allar greinar eru
kenndar meira og minna í einum graut, er viðloð-
andi á 2. námsári. Prófin hrúgast síðan á tæpan
mánuð að vori og eru mörgum ofraun. Maísólin er
auk þess hátt á lofti. Eg tel gáfulegt að dreifa vinnu-
álaginu með því að tvískipta árinu (próf í lífefna-
fræði og lífffrafræði um jól, en í hinum greinunum
að vori) eða fjórskipta námsárinu (próf að loknum
hverjum kúrsus).
3. áriif
Sama er upp á teningnum á 3. ári. Mikið prófálag
er að vori. Kljúfa mætti árið upp þannig að meina-
fræði yrði kennd fyrir jól, en lyfjafræði á vormiss-
eri. Þar sem þessar greinar eru mjög einhæfar og
kenndar langan tíma, mætti krydda námið með smá
kúrsum.
4. árið
Allir eru sammála um að 4. árið nýtist illa til
náms. Námið er aðallega verkleg hand- og lyflæknis-
fræði ásamt fyrirlestrum. Engin próf eru tekin í
þessum greinum fyrr en á 6. ári, þar af leiðandi lesa
stúdentar af litlum krafti og tvöfalda vinnuálag sitt
á 6. ári. Markmiðið með fyrirlestrunum er að kenna
1. sept,- 25. sept,- 6. nóv,- 21. des.- 2. apríl-
25. sept. 6. nóv. 21. des. 2. apríl 23. maí
BlóSsjúkdómar Allir stúd.
Hjarta- og æðasjúkdómar A B c D
Slysavarðst. og orthopedía D A B C
Meltingarsjúkdómar C D A B
Rtg. 3v, svæfing 2v. og
infect. sjd. klin. lv. B C D A
vítt og breitt námsefnið, en siðan kafa dýpra á 6.
ári. Marga grunar að það verði því endurtekning.
Fyrirlestrar um sjúkdóma frá hinum mismunandi
líffærakerfum er öllum blandað saman - þannig að
stundum líður hálfur mánuður milli fyrirlestra í
sama líffærakerfi, þar af leiðandi samhengisleysi.
Til þ ess að 4. árið nýtist sem skyldi er lang virk-
asta leiðin að hafa próf sem gilda eitthvað til læknis-
prófs. Þar sem allir stúdentar eru mjög ánægðir með
kúrsusakerfið á 5. ári, en þar er boðið upp á lestur
einnar greinar í einu á vel skipulögðum kúrsus, þá
hefur sú hugmynd vaknað hvort ekki mætti kljúfa
hand- og lyflæknisfræðina upp í kúrsa, sem ljúka
myndi með prófi er gilti % af lokaeinkunn í nefnd-
um greinum (2 heilir sem samsvarar einkunnum í
meinafræði og lyfjafræði samanlögðum svo dæmi sé
tekið). Allar þessar greinar geta síðan komið upp í
prófklínik eða munnlegu prófi á 6. ári.
Þetta kerfi dreifir álaginu og gefur möguleika á
3. ÁR
7. sept. 10. jan. 10. fehr. 31. maí
Meinafræði Skoðun sjúklinga kennd J ó Klíniskt nám Lyfjafræði
Tölfræði 1 Sálarfræði
40
LÆKNANEMINN