Læknaneminn - 01.11.1977, Blaðsíða 25
og það liefur hafið útgáfu á þeim erindum sem flutt
hafa verið á fundum félagsins. Gigtsjúkdómafélag
íslenzkra lækna gekkst nú í haust fyrir námskeiði
um gigtsjúkdóma á vegum fræðslunefndar læknafé-
laganna. Námskeiðið sóttu um 85 læknar og lækna-
nemar og fyrirlesarar voru 30, þar af 2 erlendir. Er-
indi þau sem haldin voru á námskeiðinu verða gefin
út sem fylgirit Læknahlaðsins. Einnig erum við að
vinna að útgáfu erinda frá Norræna Gigtlæknaþing-
inu í fyrra.
Bæði gigtarfélögin munu nú í nóvembermánuði
helga sérstakan dag baráttu við gigtina. A þess-
um degi, Gigtardegi, verður hátíð í Háskólabíói
með fræðslu og skemmtun fyrir almenning. Islenzka
póstþjónustan mun um svipað leyti gefa út gigtar-
frímerki. Hafin verður upplýsingaherferð í fjöl-
miðlum og sýnd verður kvikmynd um liðagigt hjá
börnum, eitt af vanræktu vandamálunum á sviði
gigtlækninga.
IkL'Íii rannsóhnaraðstaÍSa —
haett tjUitarnieðferÍÍ
Það er enginn vafi á því að aukin fræðsla stuðlar
að bætlri gigtarmeðferð, en það er vitað mál að sú
læknishjálp og aðstoð sem gigtarsjúklingar njóta,
er ærið mismunandi og yfirleitt ófullnægjandi svo
að mikilla úrbóta er þörf. I lögum Gigtarfélags ís-
lands stendur að það sé hlutverk félagsins að efla að-
stöðu til gigtlækninga m. a. með því að stuðla að
opnun gigtsjúkdómadeilda, rannsóknastofnana,
heilsuhæla og endurhæfingarstöðva. Félagið hefur
þegar riðið á vaðið með því að safna fé til kaupa á
„Sindurteljara“ til ónæmisfræðilegra rannsókna á
gigtsjúkdómum. Flestir illvígir gigtsjúkdómar eiga
rætur að rekja til truflunar á ónæmiskerfi líkamans.
Greining og meðferð þessara sjúkdóma byggist þess
vegna að verulegu leyti á ónæmisfræðilegum rann-
sóknum. Sérstök aðstaða til slíkra rannsókna er ekki
fyrir hendi hérlendis, enda hefur til skamms tíma
vantað ónæmisfræðing til þess að annast þessa þjón-
ustu.
Helgi Valdimarsson, dósent í ónæmisfræði við
læknadeild Háskóla íslands, rekur rannsóknastofu í
ónæmisfræði fyrir St. Mary’s læknaskólann í Lon-
don um leið og hann annast kennslu í fræðigrein
sinni hér við læknadeildina, eins og allir vita. Hann
hefur boðið heilbrigðisyfirvöldum að setja upp og
annast rekstur rannsóknastofu á þessu sviði hér á
Islandi. Hyggst hann segja upp stöðu sinni erlendis
og flyljast heim jafn skjótt og viðunandi grundvöll-
ur hefur verið tryggður fyrir rekstri ónæmisfræði-
legra rannsókna hér á landi. Nú er kominn vísir að
rannsóknastofu í ónæmisfræði gigtsjúkdóma hér á
Landspítalanum að tilhlutan Helga og undir handar-
jaðri Arinbjörns Kolbeinssonar á rannsóknastofu
Landspítalans í sýklafræði og standa vonir til þess
að þessari starfsemi vaxi fiskur um hrygg við til-
komu hins nýja tækis sem Gigtarfélag Islands ætlar
að gefa Landspítalanum.
Rannsóknastofa í ónæmisfræði verður merkur á-
fangi á leið til bættra gigtlækninga, og tel ég slíka
rannsóknastofu forsendu þess að gigtsjúkdómafræð-
in nái að þróasl eðlilega á íslandi. Sérhæfð gigt-
sjúkdómadeild verður svo að koma í kjölfarið með
göngudeild og endurhæfingarstöð og í nánum tengsl-
um við ortopediska deild. Slík gigtsjúkdómadeild
verður að vera miðstöð gigtarrannsókna með
kennsluaðstöðu fyrir allar heilbrigðisstéttir og
möguleika á því að sérmennta lækna. Sem stendur
er kennslustaða í gigtsjúkdómafræðum við lækna-
deild Háskóla Islands bundin sérfræðingsstöðu við
lyflækningadeild Landspítalans. Kennsluaðstaða er
ófullkomin, m. a. vegna þrengsla, bæði í legudeild
og í göngudeild og vegna aðstöðuleysis endurhæf-
ingardeildar Landspítalans.
A lyflækningadeild Landspítalans er D-gangur
með 23 rúmum nýttur að hluta fyrir gigtsjúklinga
og eru um 300 innlagnir á ári vegna gigtar. Það eru
alltaf margir á biðlista og litlir möguleikar á hráða-
innlögn nema þriðju hverja viku sem Landspítalinn
er á akút vakt.
í göngudeild Landspítalans fyrir gigtsjúka eru um
2000 viðtöl á ári. Þessari starfsemi er þröngur stakk-
ur skorinn vegna mikilla þrengsla. Þó er það verst
að hafa ekki opna endurhæfingardeild í Landspítal-
anum svo að við verðum að senda gigtsjúklingana í
endurhæfingu út um allan bæ. Legudeild endurhæf-
ingardeildar, 13 rúm, er auðvitað alltof lítil og tek-
ur Reykjalundur við flestum legusjúklingum okkar
til áframhaldandi endurhæfingar. Þetta aðstöðuleysi
endurhæfingardeildar Landspítalans stafar bæði af
þrengslum og skorli á sjúkraþjálfurum og iðjuþjálf-
LÆKNANEMINN
17