Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Side 16

Læknaneminn - 01.11.1977, Side 16
Samkvæmt útreikningum skriffinna læknadeildar töldust 26 stúdentar hafa staðizt 1. árs próf. Skyldi því skera að hausti. Þótti nokkrum nýliðum illt í efni og flestar greinar velsæmis brotnar. Var nú og tilhlýðilegt að gera gagnárás, enda engu að tapa nema hlekkjunum. Lagt var í póstinn bréf til deild- arráðs dagsett 19. ágúst 1976 þar sem sýnt var fram á hæpnar forsendur fjöldatakmörkunar: 1. Samkvæmt kennsluskrá skyldi kennsla í líffæra- fræði hefjast 20. jan. eða 8 dögum fyrir áður- nefndan deildarfund; kennslan hófst að vísu ekki fyrr en í febrúar vegna veikinda, en engu síður hlaut 20. jan. að teljst upphaf síðara misseris. 1. árs. Kennsla í lífrænni efnafræði var hafin áður en fundurinn var haldinn. Af lagalegum ástæðum gat „numerus clausus“ ekki staðizt, því ákvörðun um beitingu hans var ekki tilkynnt fyrir upphaf misserisins. Að auki er sennilegt, að tilkynna þurfi beitingu fjöldatakmörkunar fyrir upphaf haustmisseris því janúarpróf eru reiknuð til lækn- isprófs (sjá 42. gr. b). 2. Einungis 21 nemandi náði öllum prófum veturinn 1975-76. 4 útlendingar höfðu fengið metin próf erlendis frá og einn íslenzkur stúdent hafði lokið vorprófum 1. árs veturinn 1974-1975. A þeim hvíldi því augljóslega minna álag þennan vetur en öðrum 1. árs nemum. 3. Bent var á, að tæplega helmingur íslenskra stúd- enta hafði setið 2-3 vetaur á fyrsta ári. Þyrftu þeir ekki að sinna verktímum og væntanlega hefðu þeir lesið námsefnið áður. 4. Af „26“ 1 .árs kandidötum voru 9 útlendingar og 1 Vestur-íslendingur. 26 -4- 10 = 16. Það er að segja 16 íslenzkir íslendingar náðu prófunum. Út- lendingarnir höfðu margir stundað skylt háskóla- nám erlendis. Af ofangreindu er ljóst að stúdentar 1. árs gengu ekki á jafnréttisgrundvelli að prófum í læknadeild, svo og að heimild reglugerðar skorti til lieitingar fj öldatakmörkunar. Bréf þetta var tekið fyrir á aukafundi deildarráðs 15. ágúst 1976 og í fundargerð má finna gullvæga lýsingu á umræðum um málið: „málið rætt“ (þessa lýsingu á umræðum má finna víða í fundabókum læknadeildar!). Að loknum umræðum ályktaði deildarráð, að „með tilliti til ríkjandi aðstæðna skuli öllum nemendum í læknadeild, er staðizt hafa vorpróf eða haustpróf fyrsta árs 1976, heimilt að halda áfram námi, nema sérstakar ástæður hamli.“ IU7(i—77 Unrúttan í day Síðast liðið haust hafði læknadeild enga yfirlýs- ingu gefið um fjöldatakmarkanir skólaárið 1976- ’77 aðra en þá, að þeir einir, sem stæðust lilskilda lágmarkseinkunn í hverju fagi á janúarprófum, fengju að þreyta vorpróf. Það kom 1. árs læknanem- um því mjög á óvart, þegar eftirfarandi tilkynning var birt þann 27. des. 1976, er aðeins var um það bil hálfur mánuður þar til janúarpróf skyldu haldin: „Á deildarfundi læknadeildar 22. des. 1976 var eftirfarandi samþykkt: Strax og einkunnir úr prófum fyrsta árs liggja fyrir, skal deildarráð raða stúdentum er náð hafa öllum prófum í sæti eftir meðaltalseinkunn þeirra í öllum prófum fyrsta árs (inngangur að líffæra- og lífeðlisfræði, efnafræði I, efnafræði 11, eðlisfræði, líffærafræði hafa vægi % en forspjallsvísindi hafa vægi 14)- Þeim stúdentum er skipa 36 efstu sætin skal leyft að halda áfram námi í deildinni. Nái ekki 36 stúdentar öllum prófum skal þeim stúdentum er fallið hafa í einhverju prófi raðað í lausu sætin eftir meðaltalseinkunn og mega þeir þá þreyta haustpróf. Séu fleiri en einn um 36. sætið, skal deildarráð skera úr um hver það hlýtur með hlutkesti.“ Ekki var það ákvörðunin um beilingu numerus clausus, sem svo kom á óvart ,heldur að janúarpróf- in skyldu reiknuð með í meðaleinkunn til notkunar í numerus clausus. Þegar í stað voru borin fram mótmæli við deildarforseta læknadeildar, Ölaf Bjai'nason, um ofangreint atriði, enda stendur í 42. grein í Reglugerð Háskóla Islands um læknadeild: „Sé fjöldi stúdenta, sem stenzt 1. árs próf, meiri en svo að veita megi þeim öllum viðun- andi framhaldskennslu við aðstæður á hverj- um tíma, getur deildin takmaikað fjölda þeirra sem halda áfram námi . . . skal ákvörð- un hverju sinni tilkynnt fyrir upphaf þess misseris, er prófið er haldið.“ Einnig mótmæltu nemendur því að hlutkesti skæri úr um 36. sætið, væru fleiri en einn um það. 10 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.