Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Síða 17

Læknaneminn - 01.11.1977, Síða 17
A prófum í janúar féll 50% nemenda út úr deild- inni, en próf þessi var ekki hægt aS endurtaka. Þá var 51 nemandi eftir á árinu. Nemendur þessir boð- uðu kennslustjóra læknadeildar, Jón G. Stefánsson, á sinn fund. Sagði hann m. a., að' fjöldatakmörkun- um yrði örugglega framfylgt. Kennslustjóri gat ekki fært nein rök fyrir nemendafjöldanum 36, en sagði þó, aS takmarka yrSi nemendafjöldann vegna þrengsla í verklegri kennslu á síSari árum námsins. Einnig sagði kennslustjóri, aS hlutkesti yrSi örugg- lega beitt, en janúarpróf yrðu líklega ekki reiknuS með. Nemendur vildu ekki una þessu og leituðu því álits Jónatans Þórmundssonar lagaprófessors. í á- litsgerð um þetta mál taldi hann hæpið að beita numerus clausus í ár, þar eð ágallar væru á undir- búningi hans. Svo sem aS áðurnefnd tilkynning frá 27. des. ’76 sé of seint fram komin, sbr. 42. grein Reglugerðar H. f. um læknadeild. Einnig taldi hann, að þó hluti prófa væri haldinn í maí, breytti það engu, heldur mætti ætlast til að ákvörSun sem þessi væri tilkynnt fyrir upphaf haustmisseris, bæði varð- andi próf, sem haldin væru á því misseri svo og á vormisseri. Einnig var Jónatan spurður álits um hvort yfirlýsing kennslustjóra um að janúarpróf yrðu líklega ekki reiknuð með, breytti einhverju um ólögmæti áðurnefndrar tilkynningar, og svaraði hann því neitandi. Nemendur lögðu næst máliS og álitsgerS Jóna- tans fyrir deildarráð læknadeildar og var málið tek- ið fyrir á fundi þess þann 27. mars ’77. Fyrir fund þennan hafði deildarráð læknadeildar leitað álits lögfræSings H. I., Jóhannesar L. L. Helgasonar. Taldi hann þetta vera álitamál, en persónulega taldi hann læknadeild heimilt að beita fjöldatakmörkun- um í ár, þar sem aðeins væri tekinn til viSmiðunar árangur vorprófa. Stuttu síðar var samþykkt á fundi deildarráðs að birta eftirfarandi auglýsingu um staðfestingu fjöldatakmarkana: .,Tilkynning vegna 1. árs prófa í lœknadeild. Svo sem áður hefur veriS tilkynnt mun 36 stúdentum af þeim sem ná 1. árs prófum verða heimilað að hefja nám á 2. ári n. k. haust. Vegna tilmæla 1. árs nema og að höfðu samráði við lögmann Háskóla íslands verður árangur vorprófa eingöngu lagður til grund- vallar vali þeirra, sem heimilað verður að halda áfram námi. Reykjavík, 4. 5. ’77 Deildarforseti.“ Næst bar það til tíðinda, aS á fundi deildarráðs, þann 1. júní ’77, voru bornar til atkvæða tvær til- lögur Félags læknanema. I fyrsta lagi, að erlendir nemendur yrðu ekki taldir með í fjöldatakmörkun- um. I öðru lagi, aS hlutkesi yrði ekki látið skera úr um 36. manninn. Tillögur þessar voru felldar með fjörum atkvæðum gegn tveim. Útlendingar þessir ætla allir að halda áfram námi í heimalandi sínu eftir annað ár hér. Fannst nemendum hróplegt ósam- ræmi í því, að tillaga þessi var felld og orðum kennslustjóra læknadeildar um að verklegt nám á síðari árum ylli því, að ekki væri unnt að leyfa fleiri nemendum en 36 að hefja nám á öðru ári. Um þetta leyti þreyttu 51 nemandi vorpróf og náðu 31 þessum þrem prófum. Þetta kemur fram í bréfi frá skrifstofu læknadeildar til þeirra nemenda, sem ekki náðu prófum. Þar segir einnig, að þeir tuttugu nemendur, sem féllu í einu eða fleirum af þessum prófum, skuli keppa um þau fimm sæti, sem eftir séu. Einnig er nemendum bent á í bréfi þessu, að þeir hafi heimild til að endurtaka próf, sem þeir hafa náð, til að hækka meðaltalseinkunn sína, en sú einkunn ákveði hverjir fái að hefja nám á öðru ári. Stuttu eftir vorpróf ákváðu nokkrir 1. árs nem- endur að hittast til skrafs og ráðagerða um áfram- haldandi aðgerðir gegn numerus lausus. Ákveðið var í samráði við háskólarektor að leita stuðnings háskólaráðs, og var því sent eftirfarandi bréf: „Háskólaráðsfundur fimmtudaginn 7. júlí ’77. Félag læknanema fer þess á leit að háskólaráð beiti sér fyrir því, að fjöldatakmörkunum í lækna- deild verði ekki framfylgt í ár. FélagiS æskir þess einnig, að háskólaráð fari þess á leit við læknadeild, aS hún: 1. geri grein fyrir ástæðum til beitingar fjöldatak- markana í ár. 2. geri grein fyrir rökum að baki nemendafjöldans 36. 3. geri grein fyrir ástæðum þeim, sem lágu að baki því, að deildarráS hafnaði tillögu Félags lækna- LÆKNANEMINN 11

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.