Læknaneminn - 01.11.1977, Qupperneq 22
kvæmi hann hjartaflutning sperra allir eyrun. Eins
og stendur láta Bretar einungis um 4,5% af fjárveit-
ingu til heilbrigðismála renna til meðferðar og rann-
sókna á gigtsjúkdómum. Prófessor Watson Buchan-
an segir að það fjármagn sem hið opinbera verji til
rannsókna á gigtsjúkdómum mundi vafalaust sóma
sér vel í metabók Guinnes, sem lægsta upphæð er
veilt væri til lausnar nokkurs meiriháttar félags-
vanda. Prófessor Erik Ailander hefur reiknað út að
af kostnaði vegna gigtsjúkdóma í Bandaríkjunum,
Bretlandi og Svíþjóð renni aðeins l-6%c af þessum
kostnaði til rannsókna á gigtsjúkdómum. Þetta er
hlægilega lág tala og ekki að undra þótt við vitum
ekki meira um orsakir þessara sjúkdóma.
Alþjóðlefít gigtarár
Af ofanskráðu má ráða að ekki hafi þótt vanþörf
á að vekja athygli á þessu vandamáli, gigtinni. I því
skyni tóku höndum saman Alþjóðasamband gigtar-
félaga (International League against Rheumatism
ILAR) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)
og helguðu árið 1977 baráttu við gigt. Tilgangurinn
með Gigtarárinu er í fyrsta lagi að auka þekkingu
og skilning og glæða áhuga á gigtsjúkdómum, í öðru
lagi að bæta aðstöðu til gigtlækninga og bæta gigt-
afíneðferð og í þriðja Iagi að hvetja til aukinna vís-
indarannsókna á gigtsjúkdómum. Sérstök miðnefnd
var sett á laggirnar lil þess að skipuleggja baráttuna
og hefur hún aðsetur í Manchester. Nefndin gefur
út fréttabréf til þess að kynna baráttuna á Gigtarári
í hinum ýmsu löndum og hvetja til enn meiri að-
gerða. Annars var gigtsjúkdómafélögum lækna og
gigtarfélögum áhugamanna í hverju landi fyrir sig
falið að sjá um baráttuna í eigin landi.
Gigtsjúkdómafélag íslenzkra lækna var stofnað af
Sigurði Samúelssyni prófessor árið 1963. Meðlimir
eru 25 læknar, sem flestir eru í einhverjum tengslum
við gigtlækningar og hafa áliuga á framgangi þeirra.
Félagið er meðlimur í European League against
Rheumatism (EULAR) og International League
ageinst Rheumatism (ILAR). EULAR og ILAR
þinga hvert fyrir sig 4. hvert ár og hafa meðlimir
Gigtsjúkdómafélags ísl. lækna sótt þessi þing og
lagt þar fram rannsóknir sínar á gigtsj.dómum á Is-
landi og komist þannig í nánari tengsl við gigtlækna
í öðrum löndum. Félagið er einnig virkur þálttak-
andi í samstarfi gigtlækna á Norðurlöndum og héld-
um við 16. Norræna gigtlæknaþingið í Reykjavík í
fyrra. Annað hvert ár halda Norrænu gigtlæknafé-
lögin námskeið, sem sérstaklega eru ætluð ungum
læknum í sérnámi og hafa nokkrir Islendingar sótt
þessi námskeið og vil ég benda ungum læknum á
þau. Námskeiðin eru haldin til skiptis í Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Stofnun GigUirféltigs íslands
Gigtsjúkdómafélag íslenzkra lækna hóf undirbún-
ing að Gigtarári með því að gangast fyrir stofnun
Gigtarfélags íslands. Á 16. Norræna gigtlæknaþing-
inu í Reykjavík 21.-23. júní 1976 héldu norrænu
gigtarfélögin, sem eru áhugamannafélög í hverju
Norðurlandanna fyrir sig, aðalfund sinn. Stjórn
Gigtsjúkdómafélag íslenzkra lækna fékk nokkra á-
hugamenn úr röðum gigtsjúklinga til liðs við sig til
að þinga með stjórnum Norrænu gigtarfélaganna og
sóttum við til þeirra ráð og leiðbeiningar um stofn-
un slíks áhugamannafélags hérlendis. Gigtarfélag ís-
lands var síðan stofnað 9. október 1976. Undirtektir
voru strax góðar og voru stofnfélagar á fimmta
hundrað og eru meðlimir Gigtarfélags Islands nú á
annað þúsund.
TVtmðsgn frtrðslu um gigt
1 lögum félagsins er tekið fram að hlutverk þess
sé að annast fræðslu um gigtsjúkdóma m. a. með því
að gefa út leiðbeiningarrit fyrir gigtsjúka, efna til
fræðslufunda um gigtsjúkdóma og fá fjölmiðla til
að birta fræðslu um eðli þeirra og reyna þannig að
auka þekkingu almennings á þeim. Gigtsjúkdómafé-
lag íslenzkra lækna hefur slíka fræðslu einnig á
stefnuskrá sinni. Það hefur ekki þótt vanþörf á að
leggja svona mikla áherzlu á fræðslustarfsemina þar
eð vanþekking á eðli og orsökum gigtsjúkra jafnt
hjá lærðum og leikum hefur haft í för með sér van-
trú á gigtlækningum. Það er of algengt að heyra
bæði lærða og leika segja sem svo: „þetta er bara
gigt, það er ekkert hægt að gera við gigt.“ Þennan
leiða misskilning ætla bæði Gigtarfélag íslands og
Gigtsjúkdómafélag íslenzkra lækna að leiðrétta. Fé-
lögin hafa þegar hafið upplýsingaherferð í fjöl-
miðlum og Gigtarfélag íslands hefur haldið marga
fræðslufundi við mjög góða aðsókn og undirtektir
16
LÆKNANEMINN