Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1977, Side 29

Læknaneminn - 01.11.1977, Side 29
Um 1 áriö Efnafrœði lh Fagið er að miklu leyti upprifjun á efnafræði menntaskólanna en undirstöðufag fyrir lífefnafræð- tna. Þetta var í fyrsta skipti sem bókin var kennd. Hún hentar læknisfræði betur en sú fyrri, þar sem hún skýrir hin ýmsu fyrirbæri efnafræðinnar með orðum og minni stærðfræði. Bókin er aðgengileg, „kafar að vísu ekki mjög djúpt“ en skýrir vel það sem hún tekur fyrir, stundum jafnvel um of. Kennarinn, Ingvar Arnason, fór hvorki út fyrir efni bókarinnar né skýrði það neitt betur. Var kennsla hans nánast ekkert annað en þýðing og út- dráttur úr kennslubók. Hann notaði glærur sem auðvelt var að skrifa niður glósur af, ef fylgzt var tneð. Glósurnar eru mjög aðgengilegar til upprifj- unar og lesturs fyrir próf. Kennslan í efnafræði gat oft verið svæfandi og leiðigjörn, þar sem léleg loftræsting er í salnum og kennarinn ekki beint upplífgandi. Það var svo sem ágætt að fá eina yfirferð um kennslubókina í tím- um, en heldur hefðum við kosið að efninu væri þar gerð nánari skil. Dæmatímar voru mjög gagnlegir, ekki eingöngu það að nemendur gátu leitað eftir hjálp kennara við úrlausn dæma, heldur gafst einnig tækifæri að bera upp aðrar spurningar tengdar náminu. Mikilvægt er að reikna öll heimadæmin sjálfur, velta þeim fyrir sér og reikna sem flest önnur. Fyrirkomulag dæma- tímanna var mjög gott, en þó byggist það algerlega á því hvernig kennarinn er, hversu vel tekst til. Tilraunirnar eru til þess ætlaðar að kynna nem- endum meðferð tækja sem notuð eru í rannsóknar- stofum og nokkrar aðferðir sem tíðkast við efna- rannsóknir og greiningu. Prófið byggist a. m. 1. á dæmum, hliðstæðum dæmunum í bókinni og glós- um kennarans. Mikilvægt er að lesa vinnuskýrslur og kennslubók í verklegri efnafræði vel fyrir próf. Efnayreininfi Bókin er mjög þunglesin því hún gerir ráð fyrir góðri undirstöðukunnáttu í efnafræði, sú undirstaða fæst varla fyrr en líða tekur á vetur. Nauðsynlegt er að skilja ný grundvallarhugtök sem fram koma, svo sem ekvivalent og er eftirleikurinn þá auðveldari. Fæstir lásu bókina því kennslan byggðist algjörlega á fjölrituðum fyrirlestrum kennarans, Jóns Ollars Ragnarssonar. Fyrirlestrar þessir voru mjög að- gengilegir og skýrði Jón Öttar þá mjög vel út í tím- um. Prófið var erfiðara en í almennri efnafræði og byggðist nær eingöngu á dæmum. Mikilvægt var að hafa reiknað öll heimadæmi sjálfur og sem flest önn- ur dæmi sem við eiga. Einnig er mikilvægt svo sem í almennri efnafræði að fara vel í verklegar æfingar. Inntfuntjur að lífeðlis- of/ líffterafrœði Anatómía Bókin er óhentug, samræmist ekki kennslu, sem byggðist algerlega á fyrirlestrum Hannesar Blön- dals. Fyrirlestrar voru mjög góðir, efnið sett skil- merkilega fram. Teikningar Hannesar eru einkar skýrar og einfaldar. Hannes Blöndal tók aðeins helztu undirstöðuatriði og sleppti nokkrum köflum bókarinnar í yfirferð sinni. Námsefnið var ekki skýrt fyrr en í próf var komið. Góðar glósur eru nauðsynlegar þar sem á prófinu er spurt um atriði, sem fjallað var um í tímum en lítið rætt um í bók- inni. FósturfrœSi Bókin er góð og vel sett fram. Kennsla Hannesar Blöndals bygðist á henni og gerði liann bókinni góð skil. Fyrirlestrarnir voru einna líkastir framhalds- þáttum þar sem rakin var þróun fósturs, spennandi myndasaga. læknaneminn 21

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.