Læknaneminn - 01.11.1977, Side 50
Að sœkja um sumarvinnu í Svíþjóð
Peter Appelros læknanemi
Inngangur
Undanfarin ár hafa æ fleiri læknanemar unnið
erlendis í sumarfríinu. SíðastliSið sumar störfuðu
níu 4-árs-nemar sem aðstoðarlæknar í Svíþjóð, og
þar að auki unnu a. m. k. fimm af 4. og 5. ári í
Noregi. Vegna þessarar auknu aðsóknar væri e. t. v.
tímabært að gefa nokkur ráð um hvernig fara á að
til þess að komast í slíka stöðu.
Kröfur til unisæhjanda
Almennt séð hafa þeir rétt á að fá vinnu sem að-
stoðarlæknar sem hafa:
1) Slundað klíniskt nám í a. m. k. fjögur misseri.
Svíar telja íslenzka læknanema hafa gert það í lok
4. námsárs.
2) Tekið lokapróf í viðkomandi grein. Eftir 4.
ár mega menn vinna á röntgen-, HNE-, augn-, og
húðdeild eða á rannsóknastofu (t. d. í meinafræði,
sýkla- og ónæmisfræði, klíniskri lífeðlisfræði eða
meinefnafræði (klin. kemi)). Eftir 5. ár mega menn
þar að auki vinna á fæðingar- og kvensjúkdóma-
deild og geðdeild. Oljóst er, hvort leyíilegt sé að
vinna á svæfingar-, barna- eða taugadeild án þess
að hafa próf í lyflækningum, enda hefur enn ekki
reynt á það að ráði.
3) Nœga sœnskukunnáttu. Vegna langs dönsku-
náms hefur öllum íslendingum hingað til nægt að
taka fáeina einkatíma í sænsku og síðan taka minni-
háttar próf hjá einhverjum af sænskukennurum há-
skólans.
Utnsóhnin
Bezt er að hafa tímann fyrir sér. Sænskir lækna-
nemar byrja oft að sækja um sumarvinnu í desem-
ber. íslendingarnir ættu þess vegna einnig að sækja
um sem allra fyrst, lielzt ekki seinna en í febrúar,
enda eykur það líkur á að fá stöðu.
Það nægir að sækja um eina stöðu. Iðulega er
mjög auðvelt að fá stöðu í afleysingum yfir sumar-
mánuðina. Við sem sóttum um í vor fengum jákvætt
svar í u. þ. h. 80% tilfella. Svar við umsóknum
kemur fljótlega, oftast eftir 2-3 vikur, þannig að
það er nógur tími til stefnu til að sækja á aðra
staði, ef einhver er svo óheppinn að fá neitun. Með
þessu móti ætti ekki að þurfa að endurtaka sig það
„kauphallarbrask“, sem nokkuð bar á sl. ár, þegar
menn sem höfðu sótt til fjölmargra staða „gáfu“
félögunum stöður sem þeir ekki gátu nýtt sjálfir.
Slíkt er mjög illa séð bæði hjá vinnuveitendum og
Socialstyrelsen (það embættisverk sem þarf að við-
urkenna allar stöðuveitingar á sjúkrahús), enda
þurfa þeir þá að taka fyrir sama mál í tvígang.
Jákvætt svar frá vinnuveitanda felst í formlegu
boði um stöðu (erbjudande). Því fylgir átagande,
sem er siðferðislega bindandi staðfesting á því að
umsækjandi taki við stöðunni. Ef maður enn vill fá
starfið, á maður að fylla út, skrifa undir og senda
til baka þetta „&takande“, helzt innan viku (f. a. af
tillitssemi við aðra umsækjendur um sömu stöðu).
Að lokum, ef Socialstyrelsen gefur samþykki sitt,
fær viðkomandi „förordnande“ sem aðstoðarlæknir,
og er það endanleg staðfesting vinnuveitanda á
ráðningu.
Iiíii i!i ald unisóhntir
1) Almenn atriði.. Nafn, fæðingardagur og -ár,
menntun, fyrri störf, óskir um á hvaða tímabili mað-
ur vill vinna. Ráðlegt er að bíða með húsnæðisóskir
o. þ. h. praktísk vandamál, þar til maður hefur feng-
ið „erbjudande“.
2) Einkunnir á prófum í háskólanum, vottorð
um kúrsusa, ásamt upplýsingum um hvaða prófum
og kúrsusum sé enn ólokið á námsárinu (þetta skjal
fæst hjá Nínu ísberg á skrifstofu læknadeildar).
3) Vottorð um sœnskukunnáttu.
4) Stúdentsprófseinkunnir.
42
LÆKNANEMINN