Læknaneminn - 01.11.1977, Qupperneq 62
Sent blaðinu
Læknanemanum hefur borizt „An Epitome oj Oto-
neurology“ eftir Olaf Pétur Jakobsson cand. med.
Þetta er samantekt, dregin saman úr ýmsum áttum,
um greiningu og rannsóknir á heyrnardeyfu, jafn-
vægistruflun, eyrnasuði og öðrum vandamálum
tengdum VIII. heilataug. Hún var gefin út af Stef-
áni Skaftasyni á vegum Háls-, nef- og eyrnadeildar
Borgarspítalans. I bókinni er tekin fyrir sjúkrasaga
nokkurra einkenna, stutt yfirlit um almenna neuro-
lógíska skoðun, rannsóknaaðferðir og yfirlit yfir
helztu sjúkdóma, sem setjast á heyrnar- og jafnvæg-
istaug. Aðaláherzlan er lögð á rannsóknirnar, og er
þeim skipt í „audiological test battery“ (ýmsar
heyrnarmælingar), og „electronystagmographic test
battery“ (mismunagreining og rannsóknir á nystag-
mus). Þetta virðist vera mjög hentug „vinnubók“
fyrir aðstoðarlækna á heyrnardeildum, og þótt þetta
sé dálítið sérhæft rit, virðist mér það einnig mjög
hentugt viðbótarlesefni fyrir læknanema, lækna, eða
aðra sem áhuga hafa á faginu. Upplagið er tak-
markað, en aðspurður kvaðst höfundur reiðubúinn
að gefa út nýtt upplag af ritinu, ef nægur áhugi er
fyrir hendi (menn gætu t. d. skráð sig á lista í þeim
eintökum, sem bókasöfn Lsp, Lkot og Bsp hafa feng-
ið). Áætlaður kostnaður mundi verða um 12-1300
krónur.
Blaðinu hefur borizt sérprentanir á tveimur grein-
um úr Læknablaðinu eftir Ólaf Ólafsson landlækni,
„JJm keknaliðun og lœknaskort á Islandi“ frá 1972
og „JJm lœknaliðun og lœknanám á Islandi ‘ frá ’74.
Þetta er áminning um misræmi í fjölda sérfræðinga
og almennra lækna hérlendis, ásamt tillögum til úr-
bóta. Sumt í greininni er að vísu orðið úrelt, og
sumar hugmyndir þegar orðnar að veruleika, en
ennþá er margt að finna, sem vekur mann til um-
hugsunar. Einnig lét Ólafur fylgja með ljósrit af
grein úr Nordisk Medicin 92:87-88, 1977: „Nord-
iska liikare klarar sig bra i prov soin ger intrddes-
biljett till USA .. .“ Þar segir frá góðum árangri
norrænna stúdenta í ECFMG-prófinu, sagt frá erfið-
leikum við að komast að þar vestra, og einnig gefin
nokkur góð ráð og nothæf heimilisföng.
Frá Hjartavernd hefur borizt „Report AIX“ um
„Serum alkaline phosphatase and total bilirubin in
lcelandic males aged 34r-61 years“. Þetta er níunda
skýrsla frá fyrsta áfanga af hinni víðtæku og vel-
þekktu „prospektífu“ hóprannsókn Hj artaverndar.
Við þökkum sendingarnar.
P. Ey. 1.
Ný rannsókn á blóði í saur
Framh. aj bls. 38.
með hliðsjón af niðurstöðum þeim, sem við fengum
á samanburði á því við Diphenylamin prófið.
NB: Óll svörun með Diphenylamin er marktœk.
Frá og með 1. des. ’76 var Diphenylamin prófið
tekið í notkun á Landspítalanum í samráði við
Bjarna Þjóðleifsson, sérfræðing í meltingasjúkdóm-
um, og fleiri sérfræðinga spítalans.
Allar frekari upplýsingar fást á rannsóknastofu
Landspítalans.
54
LÆKNANEMINN