Læknaneminn - 01.04.1979, Blaðsíða 12
AUKAHLJÓÐ
SLIMHLJOÐ
FRÁ PLEURA
RONCHI NUNINGSHLJOÐ MEDIASTINAL CRUNCH
SUNDURSLITIN
GRÓF MEÐALGRÓF FÍN
CREPITATIONIR
SAMFELLD
SIBILANTES SONORES
HÁTÍÐNI LÁGTÍONI
hreyfing í terminal bronchiolum og neðar sé hljóð-
laus, enda fer lofthreyfing þar frarn með diffusion4.
Bronchovesiculer 'óndun er einnig eðlileg öndun,
sem heyrist þar sem stóru berkjurnar liggja nálægt
yfirborðinu. Slik öndun heyrist sitt hvoru megin
við bringubein í fyrsta og öðru rifjabili, milli
herðablaða og oftast yfir lungnatoppunum, stund-
um meira yfir þeim hægri. Einnig er algengt að
heyra bronchovesiculer öndun jafnvel yfir öllum
lungum hjá mjög grannholda fólki og hjá börnum
og telst það ekki óeðlilegt. Við bronchovesiculer
öndun líkist innöndun vesiculer öndun nema hún er
heldur háværari. Utöndun heyrist hins vegar mun
betur en við vesiculer öndun, tíðnin er hærri, styrk-
leikinn meiri og líkist dálítið því að blásið sé í gegn-
um rör. Hljóðin við bronchovesiculer öndun eru
talin eiga sömu upptök og við vesiculera öndun;
mismunurinn stafar aðeins af minni síun við bron-
chovesiculer öndun.
Óe&tfleg öndunurhljóð
Bronchial öndun: Þótt bronchial öndun heyrist
ekki yfir heilbrigðum lungum, má þó heyra hana
þegar hlustað er yfir trachea hjá heilbrigöum. Tíðni
hljóðsins er fremur há, það er sérkennilega holt og
útöndun venjulega lengri en innöndun. Bronchial
öndun er venjulega háværari en vesiculer öndun, þó
að stundum geti hún verið tiltölulega lágvær. Bron-
chial öndun er alltaf sjúkleg og þýðir þéttingu
(consolidation) á lungnavef með opnum berkjum
út í þéttinguna, eins og t.d. við lungnabólgu. Leiðni
hljóðsins verður þannig betri en væru lungun loft-
fyllt, en uppruni hljóðsins er sá sami og við eöli-
leg öndunarhljóð.
Amphorisk (cavernous) öndun. Þetta er sjald-
gæft öndunarhljóð og einkennist af djúpu, holu,
frekar lágtíðu hljóði, líkt og þegar blásið er yfir
flöskustút. Ltöndun er lengri en innöndun eins og
við bronchial öndun, en útöndunarhljóðið er af
lægri tíðni en innöndunarhljóðið, gagnstætt því
sem er við bronchial öndun. Amphorisk öndun
heyrist fyrst og fremst yfir stórum, þunnveggjuð-
um holrúmum í lunganu. Einnig heyrist hún stund-
um við mikinn pneumothorax og táknar þá venju-
lega opna bronchopleural fistúlu.
Veikluð eða upphafin öndun. Ondunarhljóð geta
verið minnkuð, þótt þau séu ekki af óeðlilegri gerð.
Þetta skeður t.d. við vökva í brjóstholi, loftbrjóst,
þykknaða brjósthimnu, emphysema, algjöra stíflu
á stærri bronchus og þar sem hreyfing á brjóstholi
er minnkuð, t.d. í sambandi við sársauka við önd-
un. Orsökin er aukin síun öndunarhljóða, eða minni
lofthreyfing.
6
LÆKNANEMINN