Læknaneminn - 01.04.1979, Blaðsíða 44
arinnar væru leiðandi og könnunin því hlutdræg.
Stjórn F.L. ákvað því að senda könnun þessa til
félagsvísindadeildar til umsagnar. Svar barst frá
Þorbirni Broddasyni og taldi hann könnunina vera
hlutlausa. Voru þá fengnir þrír galvaskir 4. árs
menn til að vinna úr könnuninni og munu þeir birta
niðurstöðurnar í Læknanemanum innan skamms.
Þátttaka í könnuninni var góð á fyrstu fjórum ár-
unum og mun hún því vera marktæk þar, en á seinni
tveimur árunum var þátttaka slæm.
Numerus clausus
Enn einu sinni reyndi læknadeild að beita fjölda-
takmörkunum. Að venju tókst illa til. Deildarfundur
samþykkti tillögu þann 16. febrúar þar sem ákveðið
var að hleypa 35 útvöldum upp á annað ár veturinn
1978-’79. Tillaga jressi var samþykkt með 21 at-
kvæði gegn 18 og sátu 3 hjá. Heldur hlaut tillaga
þessi skjótan endi, því hún var felld í háskólaráði
með 12 atkvæðum gegn 3.
Skýrsla nefndar um úrbœtur svo komasl megi hjá
beitingu heimildarákvœðis um takmörkun aðgangs
að námi á öðru ári í lœknadeild
Á vegum háskólaráðs var stofnuð nefnd með of-
angreint hlutverk. 1 nefndinni störfuðu 2 fulltrúar
frá háskólaráði og kennslustjóri Háskóla Islands
auk tveggja fulltrúa frá læknadeild og eins fulltrúa
stúdenta. Nefndin vann gríðarmikið starf, einkurn
að öflun upplýsinga um aðstæður í Læknadeild
með tilliti til kennslukrafta, aðstöðu, kennslufyrir-
komulags og stjórnunar deildarinnar. Nefndin lagði
fram itarlegar tillögur um úrbætur til stjórnvalda,
háskólaráðs og læknadeildar. Ekki var kveðið upp
úr með það hvort beita þyrfti takmörkun í lækna-
deild enda taldi nefndin sér það ekki fært. Skýrsla
nefndarinnar er 75 bls. Hún var lögð til grundvall-
ar umræðunni í vetur um fjöldatakmarkanir.
Læknadeild áleit skýrsluna styðja fyrri fullyrðingar
sínar um nauðsyn takmörkunar, en háskólaráð
féllst ekki á það (atkvæðagreiðslu um numerus
clausus í háskólaráði lyktaði með 12—3, 12 voru á
móti numerus clausus).
Nánar verður gerð grein fyrir niðurstöðum
nefndarinnar í fyrsta tölublaði Læknanemans ’79.
Uni matarmiðamál
Það mun vera áratuga hefð að læknanemar í
klínisku námi hefðu frítt fæði á Landspítalanum
á meðan á kúrsum stæði. Smám saman tóku einnig
aðrir kennsluspítalar upp þetta fyrirkomulag og hef-
ur gegnum árin verið litið á þessar máltíðir sem
viðurkenningu fyrir það starf, auk námsins, sem
stúdentar hafa reitt af hendi á hinum ýmsu deildum
endurgj aldslaust.
Hinn 5.1. síðastliðinn barst hinsvegar formanni
vorum boðsent bréf í hendur frá Georgi Lúðvíks-
syni forstjóra ríkisspítalanna, þess efnis, að frá og
með áðurnefndum degi að telja yrði þessi hefð
lögð af. Engar skýringar fylgdu bréfinu, en gátu
stúdentar sér þess helst til að nú skyldi í eitt skipti
fyrir öll koma fjárhag ríkisspítalanna á réttan kjöl.
Stjórnin ákvað þegar að bregðast hart við og
tóku þeir Eiríkur Þorgeirsson formaður og Olafur
M. Hákonson að sér fyrir hönd stjórnar að reifa
málið. Skömmu síðar bættust Hannes Hjartarson
og Sigurður Hektorsson í hópinn. Ákveðið var að
fá deildarforseta í lið með stúdentum, og kvaðsl
hann reiðubúinn að styðja okkur og bauðst jafn-
framt til að kynna málið fyrir deildarráði. Fleiri
yfirlæknar Lsp. tóku í sama streng og var því ákveð-
ið að senda öllum yfirlæknum kennsluspítalanna
bréf til kynningar á málinu.
Á félagsfundi F.L. þann 18.01. var síðan sam-
þykkt ályktun þar sem ákvörðun yfirvalda ríkisspít-
alanna var vítt og einnig að stjórnin skyldi semja
og senda hréf þar sem kynntar væru rækilega for-
34
LÆKNANEMINN