Læknaneminn - 01.04.1979, Blaðsíða 6
Spjall
Sú spurning er áleitin, hvort kliniska námið í dag
sé uni of bundiS sjúkrahúsunum.
í dag fer allt kliniskt nám lœknanema fram á
sjúkrahúsunum. Fylgja þessu fyrirkomulagi ákveSn-
ir ókostir. Til að mynda kemur aldrei meirihluti
þeirra vandamála sem lœknisfrœðin glímir við á
sjúkrahúsin, og er fengist við þau annars staðar en
þar. Einnig leiðir binding námsins við sjúkrahús-
in til einhœfra kynna þeirra af sjúkdómum, þar eð
þeir sjá einvörðungu hástig eða lokastig þeirra, og
marga algenga aldrei. Við bœtist að í mörgum
greinum lœknisfrœðinnar s.s. húðsjúkdómum og
taugasjúkdómum er sjúklingafjöldinn takmarkað-
ur á sjúkrahúsunum og sömu sjúkdómaflokkarnir
allsráðandi.
Meginliluti námsins á sjúkrahúsunum felst í að
læra kerfisbundna uppvinnslu sjúklinga, og lœra
lœknanemar þannig meira til daglegra sjúkrahús-
starfa en sjálfslœðs mats og ákvarðanatöku. Alast
lœknanemar þannig upp í skjóli sjúkrahúsanna,
þar sem stuðningur er af öllum hugsanlegum rann-
sóknardeildum. Hins vegar kynnast þeir aldrei í
námi sínu starfinu úti í periferíunni.
Má því spyrja hvort ekki œtti að reyna að auka
þátt periferíunnar í læknanáminu og gefa lækna-
nemum þannig tœkifœri að öðlast víðlœlcari reynslu
en nú er. Þyrfti að auka verklegu kennsluna í heim-
ilislækningum og tengja hana að einhverju leyti
kliniska náminu, með stuttum námskeiðum á
heilsugœslustöðvum og jafnvel með námsstöðum
hjá héraðslœknum. Einnig þurfti að nást samvinna
við starfandi lœkna úti í bæ í þessu skyni.
Er þelta mjög mikilvœgt og nánast eina raun-
hœfa kennsluformið í ákveðnum greinum s.s. húð-
lækningum.
Mundi slík útþensla lœknanámsins leiða til auk-
innar fjölbreytni og um leið víkka sjóndeildarhring
lœknanema, en lil þessa hafa þeir aflað sér reynslu
af periferíunni með eigin vinnu í héraði, sem verð-
ur að teljast umdeild aðferð til náms.
Það er markmið hverrar lœknadeildar að mennta
sem hœfasta starfskrafta á hverjum tíma. Þyrfti hún
því að eiga frumkvœði að því að lœknanemar kynnt-
ust periferíunni á meðan á náminu stendur.
F. J.
4
LÆKNANEMINN