Læknaneminn - 01.04.1979, Blaðsíða 17
Fjölómettaðar fitusýrur í hjartavöðva
og kransœðasjúkdómar
Sigmundur Guðbjarnason í samvinnu við Jónas Hallgrímsson, Guðrúnu
Óskarsdóttur, Barböru Doell, Unni Steingrímsdóttur, Aðalstein Eiríksson og
Snorra Sigmundsson
Tilgangur þessara rannsókna er að kanna hlutverk
fjölómettaðra fitusýra í efnaskiptum og störfum
hjartavöðvans. Fitusýrur gegna margvíslegum hlut-
verkum: a) þœr eru mikilvægur orkugjafi í orku-
vinnslu hjartans, b) vissar fitusýrur, t.d. arachi-
donic-sýra, ummyndast í mikilvæg stjórnunarefni
svo sem prostaglandin, prostacyclin o.þ.h. og c)
fitusýrur eru einnig byggingareiningar í fosfoli-
pidum, sem mynda hinar ýmsu himnur frumunnar
ásamt eggjahvítusameindum.
Megnið af fitusýrum hjartavöðva eru í fosfoli-
pidum. Fosfolipidarnir eru mikilvægir fyrir 'bygg-
ingu og starfsemi himnunnar og ráða fitusýrurnar,
lengd þeirra og ómettun, miklu um eiginleika himn-
unnar. í flestum fosfolipidum eru tvær fitusýru-
sameindir estertengdar við C-atóm 1 og 2 í glycerol
og er mettuð filusýra venjulega í stöðu 1, þ.e. palmi-
tic-sýra (16:0) eða stearic-sýra (18:0), en ómettuð
fitusýra í stöðu 2, þ.e. linoleic-sýra (18:2n6), ara-
chidonic-sýra (20:4n6), docosahexaenoic-sýra (22:
6n3) eða oleic-sýra (18:ln9). Fjölómettuðum filu-
sýrum má skipta í fjórar fjölskyldur eftir legu tví-
hindinga í sameindinni og eru tvær fjölskyldur al-
gengastar, svokallaðar n6 og n3 fjölskyldur. Þekkt-
asta fjölskyldan eru svokallaðar n6 fitusýrur, t.d.
linoleic-sýra, 18:2n6. Fyrsta talan táknar að 18 C-
atom eru í fitusýrukeðjunni, :2 táknar tvo tvíbind-
inga í sameindinni, n6 táknar að fyrsti tvíbinding-
urinn hefst við C-atom númer 6 talið frá methyl-
enda (H3C-) fitusýrukeðjunnar, síðan er methylen-
hópur (-CHo-) milli fyrsta tvíbindings og þess næsta
og sama skipulag er þegar fleiri tvíbindingar eru í
sameindinni. Þekktustu meðlimir þessarar fjölskyldu
eru 18:2n6 og 20:4n6 og myndast arachidonicsýra
úr linoleic-sýru með keðjulengingu og frekari ómett-
un, en 18:2n6 er lífsnauðsynleg þ.e. verður að berast
manninum með fæðunni því hún verður ekki mynd-
uð í manninum en er mynduð í plöntum. Önnur
mikilvæg fjölskylda eru n3 fitusýrur, t.d. linolenic-
sýra, 18:3n3, og lengri fitusýrur með 5 eða 6 tví-
bindingum svo stm docosahexaenoic-sýra, 22:6n3.
I þessari grein verður stutttlega fjallað um áhrif
aldurs, streitu og fæðufitu á fitusýrusamsetningu
fosfolipida í hjartavöðva hjá rotlum og hliðstæðar
breytingar í mönnum samfara aldri, kransæða-
þrengslum og skyndilegum hjartadauða.
I. Rannsóknir a lijöríuni ilýra
Aldur og fosfolipidar lijarta
Marktækar breytingar verða á fitusýrusamsetn-
ingu fosfolipida í hjartavöðva í rottum með aldri
og breytist einkum magn langra, fjölómettaðra fitu-
sýra. I hjartavöðva er mest af fosfatidyl choline
(PC) (40-45% af öllum fosfolipidum) og fos-
fatidyl ethanolamine (PE) (35—4-0%) en minna
af cardiolipin (10%), fosfatidyl serine, fosfatidyl
inosilol, sphingomyelin og lysofosfolipidum. I PC
minnkar magn linoleic-sýru (18:2n6) með aldrin-
um, minnkar úr 28.4% í tveggja mánaða í 17.0%
í 18 mánaða gömlum rottum. Arachidonic-sýra vex á
sama tíma úr 11.7% í 20.6% og kemurí stað linoleic-
sýru. PE hefur hlutfallslega mikið af docosahexaen-
oic-sýru (22:6n3) og vex magnið enn frekar með
aldri eða úr 20.1% í tveggja mánaða í 28.9% í
18 mánaða gömlum rottum. Á sama tíma minnkar
linoleic-sýra úr 15.0% í 8.7% í PE, en magn ara-
chidonic-sýru hreytist ekki í þessum fosfolipid.
Magn mettaðra fitusýra og monoene fitusýra (td.
oleic-sýru, 18:1) hreytist ekki á þessum tíma né
heldur heildarmagn fosfolipida eða hlutfallslegt
magn einstakra fosfolipida.
Ástæður fyrir þessum hreytingum á fitusýrusam-
setningu himnulipida samfara aldri eru ekki þekkt-
LÆKNANEMINN
9