Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1979, Qupperneq 32

Læknaneminn - 01.04.1979, Qupperneq 32
Samspil og stilliviðbrögð frumna í ónœmissvörum Helgi Valdimarsson og Guðrún Agnarsdóttir, læknar Inngangur Flestar ónæmissvaranir fela í sér víxlverkanir mis- munandi gerða hvítra hlóðkorna. Nokkrar þessara víxlverkana eru taldar upp í töflu I. Þær eiga sér stað á öllum stigum ónæmissvarsins, en hér munum við aðallega fjalla um áhrif þessara víxlverkana á mótefnamyndun. IVIenn skilja eigi enn að fullu verkunarferli þau, sem að baki liggja, enda þótt þau hafi mikið verið rannsökuð á síðari árum af mörgum vinnuhópum. Mest af þeirra vitneskju, sem fyrir liggur, hefur fengist við rannsóknir á mús- um. Það er þó að óreyndu engin ástæða til að halda að grundvallarmunur sé á músum og öðrum spen- dýrategundum í þessu tilliti. Raunar bendir sú tak- markaða vitneskja, sem fengist hefur um aðrar teg- undir, þar á meðal manninn, til þess að ónæmissvör- um sé stýrt eftir verkunarferlum, sem eru í eðli sínu svipuð í öllum spendýrum. Tilgangur þessarar greinar er að gefa fremur einfalt yfirlit um þetta efni, og aðeins nokkurra heimilda verður getið. I fyrsta lagi veröur rætt um nokkra þá eiginleika frumna, sem máli skipta í sam- spili þeirra. Þá veröur lýst stuttlega tilraunaaðferð- um og niðurstöður þeirra dregnar saman í stuttu máli. Síðan verður kynnt eitt af nokkrum sennileg- um líkönum, sem sett hafa veriö fram um verkun- arferli frumusamspils á grundvelli upplýsinga þeirra, sem fyrir liggja. Að lokum munum við fjalla um það, hvernig starfsgerð þeirra líffæra þarf að vera háttað, þar sem víxlverkanir ónæmissvara eiga sér stað. B og T aitilfrumur Utanaðkomandi væki (immunogen) eru ekki nauðsynleg fyrir þróun B og T eitilfrumna frá stofn- frumum, en þroskun þeirra í mótefnamyndandi plasmafrumur eða virkar T frumur er háð bæði vækisáreili og víxlverkun við aðrar frumur. R frumur Enda þótt mótefnamyndun sé vafalaust aðalstarf B frumna, skyldi það ekki gleymast, að þær geta einnig framleitt önnur mikilvæg efni, svo sem MIF, LIF og Interferon. Undirflokkar B frumna hafa hingað til verið skil- greindir eftir tegund þess mótefnis, sem er í úthýði þeirra. Hins vegar benda nýlegar athuganir lil þess, að hver B fruma geti myndað mótefni af mismun- andi flokkum, eftir því á hvaða þroskastigi hún er, en sértækni mótefnis hverrar frumu helst þó óbreytt allt æviskeið hennar.1-2 Þetta er dregiö saman í töflu II. Forstig B frumna hafa Ig M í frymi sínu, en vant- ar greinanleg mótefni í úthýði og eru því blindar á væki. Þessar frumur þróast í ófullburða B frumur, sem hafa aðeins Ig M í úthýði sínu og lamast (verða tolerant), ef þær verða fyrir vækisáreiti. I músum halda þessar frumur til í milta, þar sem þær fá Ig D í úthýði auk Ig M. Þessar Ig M+ Ig D+ B frum- ur er líka að finna í blóði og eitlum auk milta. Þær eru fullþroskaðar og svara vækisáreiti, annað hvort með því að verða að plasmafrumum, sem mynda Ig M (frumsvar) eða þroskast frekar í Ig M^ Ig D+ B frumur. Þær síðastnefndu fara aft- ur í hringrás sem vækisertar minnisfrumur, sem við frekara vækisáreiti setjast að í beinmerg eða þarma- slímhúð og verða að plasmafrumum, sem mynda Ig G eða Ig A (endursvar). T fruinur Mestur hluti eitilfrumna, sem hringsóla um blóð, vefi, eitla og vessaós (ductus thoracicus), eru T frumur. Margvísleg starfsemi hefur verið tileinkuð 24 LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.