Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1979, Page 48

Læknaneminn - 01.04.1979, Page 48
gætu gerst áskrifendur að Læknablaðinu á hagstæo- um kjörum. Málið hefur hlotið mjög góðar undir- lektir hjá læknafélögunum og mun niðurstaða um verð skýrast fljótt. Þegar ljóst er um kjörin verður látinn ganga listi fyrir þá sem áhuga hafa. Lœknafélagið liefur einnig boðið læknanemum að kaupa bókina „Lægeforeningens medicin fortegnelse“ (danska sérlyfjaskráin) á kr. 2000, en bók þessi mun kosta um 10.000 kr. í bóksölunni. Þessa dag- ana ganga listar fyrir þá sem áhuga hafa á þessu. Lyfjafréttir: Stjórn F.L. reit lyfjanefnd í heil- brigðismálaráðuneytinu bréf þar sem farið var fram á að Lyfjafréttum væri dreift til læknanema á 3.-6. ári, þeim að endurgjaldslausu. Stjórnin bauðst til að sjá um dreifingu ritsins. Svar hefur ekki bor- st enn. Samstarf við stúdentaráð Allmargir fundir hafa verið haldnir með stúd- entaráði og fulltrúum deildarfélaganna. Hefur stjórnin sent fulltrúa sinn á alla þessa fundi. Ymis mál hafa verið rædd á fundum þessum og hafa þeir verið mjög gagnlegir til að kynnast viðhorfum ann- arra deildarfélaga í sameiginlegum málum. Lánamálin fengu drjúgan tíma á fundum þessum. Var þar m.a. unnið að undirbúningi fundar þess, sem haldinn var í desember með fjármálaráðherra og fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Onnur veiga- mikil mál, sem rædd voru á fundum þessum voru prófdómendur, reglugerðarmál, námskynning, kennsluskrá og fílan. Hefur þarna verið skipst á skoðunum og lagt áráðin að koma fram hagsmun- um stúdenta. Námskynning Námskynning í framhaldsskólunum var skipulögð og haldin á vegum stúdentaráðs. Farnar hafa verið ferðir í marga helstu framhaldsskóla landsins en suma á eftir að heimsækja. Þar hafa verið kynntar allar deildir háskólans, svo og nokkrir aðrir skól- ar. Hefur kynning Jressi verið í fyrirspumarformi. Læknanemar hafa tekið ]»átt í öllum þessum ferð- um og kynnt þá sæluvist, sem okkur er búin í deild- inni. Lög F.L. Læknadeild gaf ekki út sérstaka kennsluskrá s.l. haust. Þessu var grimmilega mólmælt. Afleiðingin er m.a. sú að lög F.L. hafa ekki komið út á þessu ári. Nauðsynlegt er að kippa þessu hið snarasta í lag. Meinvörp Gefin voru út 6 meinvörp á árinu, og auðvitað með allra nýjustu fréttum hverju sinni. T vískötlunarsamningur Síðastliðið sumar héldu ca. 15 læknanemar til sumarstarfa í SvíJ»jóð. Höfðu menn meðferðis vott- orð um mikilvægi starfsins fyrir nám í læknisfræði frá þáverandi deildarforseta. Til er tvísköttunar- samningur milli landanna, sem kveður á um að námsmenn, sem vinna störf, sem eru nauðsynleg fyrir nám þeirra og vinna skemur en 100 daga, skuli undanþegnir skatti. I fáum orðum dugði vottorð deildarforseta ekki alls staðar, svo leitað var til há- skólarektors, sem gaf fullnægjandi vottorð. Nú hef- ur stjórnin farið þess á leit við núverandi deildar- forseta að hann gefi fullnægjandi vottorð. Tók hann þeirri málaleitan vel. Ráðningar - Nýjar reglur 1 stjórninni var nokkuð rætt um óánægju, sem upp kom í tengslum við ráðningar félagsmanna í sumar. í áframhaldi af því var ákveðið að gera heildarendurskoðun á reglum um ráðningar. Þriggja manna nefnd vann í málinu. Leitast var við að setja ákvæði um einstök atriði, sem jafnan hafa valdið deilum og festa í reglugerð ákvæði um hvernig raða skuli forgangsröð. Haldinn var sérstakur félagsfundur ]»ann 18.01. ’79 um reglugerðina. Reglugerðardrögin voru samjrykkt með nokkrum breytingum. Að Jjví loknu var dregið um forgangsröð. Þótti að því mikið hagræði að fá um ]»að vitneskju strax í janúar hverjar líkur væru á vinnu í júní hér á landi. A þessu ári komu engin klögumál fyrir stjórnina vegna brota á reglugerð um ráðningar. Rétt er að hvetja menn til að gera stjórninni við- vart ef reglugerðinni er mjög misboðið svo unnt sé að setja rannsóknardómstól í málinu? 38 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.