Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 31
Tjáskipti á taflborði
Laugardagirm 8. desember 1979 var haldið skák-
m°t á vegum Félags læknanema. Þetta var einstakl-
'ngskeppni þar sem allir kepptu við alla og voru
þátttakendur af öllum námsárum, samtals átján.
Keppnin fór fram í rúmgóðum hliðarsal mötuneytis
Landsspítalans (bakvið kakóvjelina). Til mikils var
að vinna, enda sigurlaunin ekki af lakara taginu.
Þarna var um að tefla flösku af dýrindis whisky, að
sögn vel við aldur og mjög lifrartoxískt.
Stríðið stóð í hartnær fjórar klukkustundir með
tilheyrandi tachycardiu, lófasvita og tremor, enda
tefldi hver sautján skákir með fimm mínútum á
mann.
Hlutu margir þau örlög að verða háðuglega
heimaskítsmát, aðrir strögluðu en féllu á tíma og
sumir töpuðu kónginum mjög óvænt. Það var og
hlutskipti sumra að stýra mönnum sínum til sigurs
°g beittu þeir jafnan fyrir sig kerlingunni og kirkj-
unnar mönnum, en varðturnar og hross fengu að
fljóta með.
Þegar upp var staðið reyndist sigurvegarinn vera
Guðmundur Elíasson. Hann tefldi af fádæma öryggi
og hlaut 151/2 vinning af 17 mögulegum. Hér á eftir
fara úrslitin:
TöjluröS, nöjn og námsár V inningar röð
1 Þorkell Sigurðsson (2.) 21/2 18
2 Olafur Gísli Jónsson .... (6.) 131/2 2
3 Þórður Sigmundsson .... (2.) 9V2 7-9
T Þórir Þórisson (2.) 31/2 17
5 Jón I. Raenarsson (6.) 121/2 3
6 Sigurgeir M. Jensson .... (5.) 51/2 15
1 Kristján Þór (1.) 6 13-14
0 Guðmundur Elíasson .... (4.) 151/2 1
9 Böðvar Orn Sigurjónsson (6.) 10 5-6
10 Ingvi Olafsson (4.) 12 4
II Júlíus Valsson (4.) 91/2 7-9
12 Axel Sigurðsson (2.) 9 10
13 Hjalti Kristjánsson (2.) 4 16
14 Kristján Guðmundsson . . (6.) 61/2 12
15 Trausti Valdimarsson . . . (2.) 6 13-14
16 Orn Ingólfsson (4.) 91/2 7-9
17 Jón Jóhannes Jónsson .. . (3.) 8 11
18 Þórarinn Harðarson .... (5.) 10 5-6
Mótið þótti vel heppnað og þrælskemmtilegt, fyrir-
irtaks skammdegisþriller. Eigi var örgrannt um, að
menn klæjaði í lifrarbrúnina þegar sigurvegarinn
yfirgaf salinn, umkringdur vinum, með sigurlaunin
í fanginu og glýju i augunum, glottandi frá eyra til
eyra.
K. G.
LÆKNANEMINN
27